fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Ingólfur ákærður fyrir mörg brot inni á Litla-Hrauni – Þráir líf í tónlist – Grunaður um hefnd eftir skotárásina við Silfratjörn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 30. desember 2023 12:30

Ingólfur Kjartansson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 14. desember síðastliðinn var þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands mál sem héraðssaksóknari hefur höfðað gegn Ingólfi Kjartanssyni vegna fimm meintra brota sem öll eru sögð framin inni á Litla-Hrauni þar sem Ingólfur afplánar núna langan dóm.

Hann er í fyrsta lagi sakaður um að hafa sumarið 2022 ráðist á mann fyrir utan fangelsið og kýlt hann í andlitið með þeim afleiðingum að maðurinn missti meðvitund stutta stund og fékk heilahristing, mar og bólgu við hægra kinnbein og skurði á vörum.

Ingólfur er einnig ákærður fyrir að hara ráðist á lögreglumann sem var við skyldustörf inni á Litla-Hrauni snemma í september 2022.

Hann er ennfremur sakaður um að hafa kýlt fangavörð í andlitið í byrjun nóvember árið 2022 en sá hlaut bólgu og eymsli í kjálka. Sama dag er hann sakaður um að hafa hrækt á fangavörð. Hann er ennfremur sakaður um að hafa þennan sama dag hótað fjórum fangavörðum á Litla-Hrauni og fjölskyldu þeirra lífláti og líkamsmeiðingum.

Sagður hafa ráðist á meintan skotmann við Silfratjörn

Umrædd ákæra tekur til brota sem framin voru árið 2022. Ingólfur er hins vegar grunaður um að hafa framið hnífstunguárás á Litla-Hrauni þann 23. nóvember síðastliðinn. Sá sem varð fyrir árásinni var þungt haldinn um tíma en var þó fljótt úr lífshættu. Þolandi árásarinnar er grunaður um skotárás sem framin var í fjölbýlishúsi við Silfratjörn í Úlfarsárdal nokkrum vikum fyrr. Talið er árás Ingólfs hafi verið hefnd fyrir þá skotárás sem beindist gegn vini Ingólfs, Gabriel Duane. Rétt er að taka fram að þetta er ósannað og Ingólfur hefur ekki verið ákærður fyrir árásina.

Ingólfur, sem er fæddur árið 2002,  afplánar núna átta ára fangelsisdóm sem hann hlaut fyrir skotárás sem hann framdi í miðborg Reykjavíkur í febrúar árið 2022.

Ræddi um tónlistardrauma í viðtali við DV

Ingólfur var í stuttu viðtali við DV í maí á þessu ári, eða nokkuð löngu eftir að hann á að hafa framið þau afbrot sem varða málið er þingfest var nýlega. Þar sagðist hann vera sestur í helgan stein hvað glæpi snertir en hefði snúið sér alfarið að gerð rapptónlistar. Hann tekur reglulega upp lög og birtir á Soundcloud-reikningi sínum og Facebook. Ingólfur birti þar síðast lag fyrir nokkrum dögum.

Sjá einnig: Ingólfur situr af sér langan dóm fyrir skotárás en einbeitir sér nú að tónlist – „Hvað glæpi snertir er ég sestur í helgan stein“

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Allir mættu nema Mbappe
Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Í gær

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi

Ingólfur Kjartansson dæmdur í átta ára fangelsi
Fréttir
Í gær

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“

Sakar Viðskiptaráð um þráhyggju og áróður – „Því er eðlilegt að spyrja hvað vaki fyrir Viðskiptaráði með jafn villandi framsetningu?“