Áramótaþáttur Íþróttavikunnar var af dýrari gerðinni þetta árið. Kristján Óli Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson mættu sem gestir í þáttinn sem Helgi Fannar Sigurðsson og Hrafnkell Freyr Ágústsson hafa stýrt í vetur.
Í þættinum voru veitt hin ýmsu verðlaun og þá var farið yfir allt það helsta úr íþróttalífinu hér á landi sem og erlendis á árinu 2023.
Hörður er enginn aðdáandi Mikel Arteta, stjóra Arsenal, og stakk upp á því að Arsenal losaði sig við hann og fengi Unai Emery á ný, en hann er að gera frábæra hluti með Aston Villa.
„Eiga þeir ekki að sækja Emery aftur? Arteta er sennilega okkar ofmetnasti þjálfari,“ sagði Hörður.
Þetta vakti hörð viðbrögð hjá Helga.
„Ertu eitthvað bilaður? Af hverju segirðu það? Það bjóst enginn við að þeir yrðu í titilbaráttu í vor. Það er hin hliðin á peningnum, voru að kýla upp fyrir sig.“
„Þú varst kominn hálfa leið og fótbrotnaðir. Það er stutt í að menn fatti Arteta-leikþáttinn,“ sagði Hörður þá í léttum tón.
Umræðan í heild er í spilaranum.