fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

Fyrrum bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins gjaldþrota í kjölfar dóms

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. desember 2023 10:30

Jónmundur Guðmarsson. Mynd: Gunnar V. Andrésson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónmundur Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Seltjarnarness og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Þetta kemur fram í tilkynningu í Lögbirtingablaðinu í dag. Að auki var félag í hans eigu,  Polygon slf.,  gjaldþrota en úrskurðarnir voru kveðnir upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 7. desember síðastliðinn.

Gjaldþrotin má rekja til þess að í  desember 2021 var Jónmundur dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum fyrir að gefa upp tilhæfulausan kostnað í skattframtölum áðurnefnds félags, Polygon, fyrir árin 2014 til 2016. Nam oftalning rekstrargjalda um 61,5 milljónum króna samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjaness.

Auk fangelsisdómsins var Jónmundi gert að greiða 66,5 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Var það honum metið til málsbóta að hann játaði brot sín að langstærstum hluta og sýndi fulla samvinnu við rannsókn málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“

Ætluðu að slaka á í Sky Lagoon en annað kom á daginn – „Vá! Þetta er brjálað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus

Ristaðar möndlur og jólasveinar í Bónus
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“

Sigurði Árna lögreglumanni ekki gerð refsing fyrir ofbeldi gegn fanga – „Við verðum skelkaðir í aðstæðum og gerum mistök“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar

Síbrotamaður slær ekki slöku við þrátt fyrir margra liða ákæru – Fær gistingu í boði skattgreiðenda yfir hátíðarnar