Sérstök vinaverð eru nú í gangi hjá Stóra flugeldamarkaðnum. Að auki er Facebookleikur í gangi þar sem veitt verða vegleg verðlaun.
Vinadagurinn brast á með látum í Stóra flugeldamarkaðnum í dag, fimmtudag. Hægt verður að næla sér í svakalegar sprengjur á einstöku verði allan daginn en opið verður frá klukkan 10 til 22. Á netinu er vinaverð þegar komið í gang og gildir til miðnættis í kvöld.
Rúnar Ólafsson, eigandi Stóra flugeldamarkaðarins segir sprengjugleði Íslendinga hvergi hafa dvínað síðustu ár. Met var slegið í fyrra. „Ég hef verið í flugeldabransanum í 34 ár og við höfum aldrei selt eins marga flugelda og á síðasta ári, við áttum ekki eftir eitt einasta prik þegar við lokuðum á gamlársdag,“ segir Rúnar.
„Þetta er í 11. skiptið sem við höldum vinsæla Vinadaginn og því verður allt tryllt þetta árið, engar hækkanir á verði, stærri sprengjur og mjög veglegur leikur í gangi á Facebook síðunni okkar.“
„Við erum með mjög breiða línu af flugeldum og höfum frá upphafi flutt inn stórar sprengjur fyrir dellukalla. Við tókum upp á því að vera með lokaðan vinadag á Facebook þar sem hægt var að nálgast flugelda á sérstöku verði. Við gátum þá afgreitt alla dellukallana á einu bretti. Ásóknin var alltaf gríðarleg og fyrir nokkrum árum ákváðum við því að opna Vinadaginn almenningi. Það sló heldur betur í gegn.
Í tvö síðustu ár höfum við verið með vinadaginn á netinu líka og þá teygist hann yfir þrjá daga, 26., 27. og 28. desember. Það er eins í ár, Vinadagurinn gildir til miðnættis í dag og þarna erum við að tala um verð sem sjást ekki annarsstaðar enda ákváðum við að hækka ekki verðin milli ára, enn er hægt að kaupa á „vinaverði“ núna á vefsíðunni okkar storiflugeldamarkadurinn.is. Þar getur þú lagt inn pöntun og sótt frá 28. desember þegar við opnum og til 31. desember þegar við lokum. Þú keyrir til okkar niður í verslun okkar Smiðshöfða 19, við Gullinbrú.
„Við erum einnig með stórskemmtilegan Facebook leik í gangi þar sem einn heppinn getur unnið bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr.“ segir Rúnar. Hægt er að taka þátt í leiknum á Facebook. Dregið verður í kvöld.