fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Eyjan

Þórdís Kolbrún fer ótroðnar slóðir um jólin – safnar kröftum fyrir árið sem er fram undan

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 27. desember 2023 16:00

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir - KSJ/DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, er svo heppin að vera gift listakokki sem galdrar fram gómsæta rétti á jólunum. Þau eru ekki bundin í gamlar hefðir þegar kemur að jólamat og prófa sig gjarnan áfram en hún segir humar í miklu smjöri, hvítlauk og salti í forrétt vera uppáhald og svo væri hún til í að fara beint í eftirréttinn. Hún vonast til að ná að hvíla sig um jólin til að safna kröftum fyrir árið fram undan, njóta þess að lesa og rabba við fjölskylduna. Þórdís Kolbrún er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar um jólin.

Eyjan - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir - 6.mp4
play-sharp-fill

Eyjan - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir - 6.mp4

Ég veit að það er beðið eftir þér annars staðar þannig að við förum að slá botninn í þetta núna. Bara svona rétt í lokin, hlakkarðu til jólanna?

Já, ég hlakka til jólanna. Ég held ég sé ekki svona brjálað jólabarn. Mér líður vel á jólunum og mér finnst aðventan skemmtileg. Mér finnst svolítið mikil pressa á aðventunni, þú átt að vera mamma ársins og maki ársins og vinur ársins og það er einhvern veginn ansi mikið að gera, en ég hlakka til jólanna og ég vona að það komi nokkrir dagar þar sem ég næ aðeins að hvíla mig. Mig langar það nú eiginlega fyrst og fremst, lesa bækur og spila við börnin mín, spjalla við mömmu og pabba og manninn minn.“

En að borða góðan mat?

Já, borða góðan mat og svoleiðis.“

Hver er uppáhaldsjólamaturinn?

Ég ólst upp við lambahamborgarhrygg af því að amma Dísa, fædd 1915, var alltaf hjá okkur á jólunum og vildi ekki borða svín. Maðurinn minn ólst upp við rjúpu og ég er búin að reyna á hverju ári síðan við kynntumst að smakka rjúpu og ég veit að fólk sem elskar rjúpu skilur þetta ekki en ég á enn þá svolítið erfitt með þetta mikla villibráðarbragð. Þannig að við erum dálítið í því að prófa okkur áfram á hverjum jólum og erum ekkert alltaf með sama matinn á jólunum,“ segir Þórdís Kolbrún.

Er það ekki bara gott, að vera ekki fangi hefðarinnar?

Jú, mér finnst það. Maðurinn minn er hreint ótrúlega góður kokkur þannig að hann bara sér um þetta. Mér finnst humar með rosalega miklu smjöri, miklum hvítlauk og miklu salti mjög gott og ég væri eiginlega góð með það sem forrétt og fá svo bara góðan eftirrétt – það þyrfti ekkert endilega eitthvert kjöt – þannig að hann ræður meira um það, en við erum ekkert með þetta í föstum skorðum og mér finnst það notalegt,“ segir Þórdís Kolbrún. „Aðalatriðið er að þetta sé áreynslulaust og notalegt þannig að fólki líði vel þessa daga. Þannig að ég hlakka til jólanna og hlakka til að safna kröftum fyrir stórt ár, sem ég veit ekkert hvernig verður en ég veit að ég mun þurfa á kröftunum að halda.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér :

Einnig er hægt að hlusta á Spotify eða hlaðvarpsþjónustu Google:

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips

Arion banki sá að sér eftir að upp úr sauð á Fjármálatips
Eyjan
Í gær

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“

Gunnar bendir á sláandi staðreynd um stýrivextina – „Hvergi í veröldinni er auður hinna ríku varinn af eins miklum ákafa“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu

Kosningar: Lilja og Alma takast á um skatta og innviðafjárfestingu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“

Bregðast við stjórnarskrárbroti Alþingis – „Þetta er hið raunverulega andlit og arfleifð Sjálfstæðisflokksins“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“

Ragnar segir tíma til kominn að þora að spyrja stóru spurninganna um lífeyrissjóðina – „Við erum þrælar eigin kerfis“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum

Þingkosningar: Lilja segir ríkisstjórnina hafa fjárfest mikið í innviðum – Alma segir innviðskuldina ógna orkuskiptum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Grein 4 um ESB/evru: Þýzkaland tók evru fram yfir sitt ofursterka mark (DM) – hvað segir það okkur?
Hide picture