fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

 „Mannvonska að koma svona fram á aðfangadagskvöld“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. desember 2023 07:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Færsla sem Þórunn Helgadóttir birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi hefur vakið gríðarlega athygli en þar segir hún frá því þegar stjúpsonur hennar var handtekinn á aðfangadag, að því er virðist fyrir það eitt að vera svartur.

„Hvernig myndi ykkur líða ef að klukkan 6 á aðfangadagskvöld þá væri einn fjölskyldumeðlimurinn horfinn? Það kom fyrir okkur,“ sagði Þórunn í upphafi færslunnar.

Hún er gift manni frá Kenía og á með honum 28 ára stjúpson sem heitir Brian. Þau eiga einnig annan son saman sem þau ættleiddu frá Kenía.

Lögreglubíll kom að honum

Í færslunni segir Þórunn að Brian hafi verið að koma úr vinnu í Vesturbænum á aðfangadag og ætlaði að ganga upp á Hlemm til að ná strætó heim. Segir Þórunn að þá hafi komið lögreglubíll upp að honum og hann spurður um skilríki.

„Hann hafði óvart gleymt veskinu heima og var ekki með neitt á sér. Þau sögðu við hann að það væri ólöglegt að ganga um skilríkjalaus og þau gætu handtekið hann fyrir það.“

Þórunn segir í færslunni að Brian hafi sagt til nafns og kennitölu en lögregla ekki tekið hann trúanlegan.

„Hann bauðst þá til að koma daginn eftir á stöðina með skilríkin til að sanna hver hann væri en þau sögðu að hann myndi þá reyna að flýja. Þá spurði hann hvort þau gætu keyrt hann upp í Breiðholt svo þau gætu skoðað skilríkin hans. Þau sögðust ætla að gera það en keyrðu svo bara beint á lögreglustöðina á Hlemmi í staðinn,“ segir Þórunn og bætir við að lögreglumenn hefðu reynt að útskýra að fyrst hann settist sjálfviljugur upp í bílinn þá væri hann handtekinn.

„Þar var hann færður í móttöku fanga og í yfirheyrslu. Allt sem hann sagði sögðu þau vera lygi. Sögðu svo að hann yrði að samþykkja það að þau færu inn heima hjá honum til að skoða sig um og leita að eiturlyfjum. Ef hann myndi ekki samþykkja það þá yrði hann að gista í fangageymslu yfir nóttina. Hann sagði að hann gæti ekki samþykkt að þeir færu inn í íbúðina. Fjölskyldan væri heima að halda upp á aðfangadagskvöld. Þau yrðu að bíða fyrir utan meðan hann sækti vegabréfið.“

Gæti hringt í lögfræðing

Þórunn segir í færslunni að lögregla hefði tekið af honum símann og fékk hann ekki að hringja. Fékk hann þau skilaboð, að sögn Þórunnar, að hann gæti hringt í lögfræðing.

„Hvaða lögfræðing er hægt að hringja í á aðfangadagskvöld? Hann fékk ekki vatn að drekka og fékk ekki að fara á klósettið. Það var öskrað á hann og hann var spurður af hverju hann væri svona aggressívur þegar hann var að reyna að svara og útskýra sitt mál. Að lokum var hann færður í fangaklefa.“

Þórunn segir að lögreglumaður hefði að lokum lagt til að Brian yrði ekið heim og skilríki hans skoðuð þar.

„Í bílnum hélt löggan áfram að reyna að fá samþykki fyrir því að fara inn í íbúðina. En inni í íbúðinni vorum við fjölskyldan í engu jólastuði, ringluð, stressuð og kvíðin því ekki náðist í Brian. Rétt fyrir klukkan 22 um kvöldið kom löggann loksins með hann. Við vorum mjög fegin að sjá hann en brá að sjá lögguna. Þau biðu fyrir utan dyrnar en þegar ég kom fram á gang og spurði hvað væri að gerast þá kom smá fát á þau. Þau sögðust þurfa að vita hver hann væri. Á þeirri stundu skildi ég ekki hvers vegna þau þurftu að vita það. Fattaði svo að þau þurftu að vita það af því hann er svartur.“

15 ára sonur hennar stöðvaður reglulega

Þórunn segir að lögreglumenn hefðu skoðað vegabréfið hans í leit að innkomustimpli frá þessu ári.

„Ég sagði að stimpillinn væri nú reyndar frá 2014. Brian sagði Mamma við mig og þá bara lokaði löggan vegabréfinu og lét sig hverfa þegjandi. Við erum nú búin að lenda í ýmsu með lögguna,“ segir hún og bætir við að 15 ára sonur hennar sé reglulega stoppaður og það leitað á honum.

„Hann upplifiði það á hátíðinni túnin heima í Mosó að vera tæklaður í jörðina, fá hné í bakið og handjárnaður fyrir framan fullt af fólki. Ástæðan var að hann var að hlaupa á klósettið en löggan hélt að hann væri að flýja þá af því að hann hefði framið líkamsárás. Við höfum ekki verið að blása þetta allt saman upp, en þetta aðfangadagskvöld gekk svo rosalega langt að það er erfitt að kyngja þessu,“ segir hún.

Þórunn ræddi við Vísi í gærkvöldi eftir að færslan birtist þar sem hún sagði fjölskylduna vera í sárum en reyni að halda áfram með lífið. Brian íhugi að fara með málið lengra.

„Það er ekki sjálfsagt fyrir svartan mann að taka þátt í þessu óáreittur. Þetta myndi aldrei koma fyrir hvítan Íslending. Við höfum aldrei hugsað um að fara lengra með þessi atvik en þetta gekk svo ofboðslega langt á aðfangadagskvöld. Mér finnst það mannvonska að koma svona fram á aðfangadagskvöld.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“

Safnað fyrir fjölskyldu Viðars – „Setti mig og börnin okkar alltaf í fyrsta sæti“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill