Við á Fókus höfum áhuga á stjörnuspeki og þegar við rákumst á skemmtilega og frekar hreinskilna lýsingu á stjörnumerkjunum þá gátum við ekki annað en ráðist í að þýða og staðfæra.
SPORÐDREKINN notar alls konar tilbúin hugtök til að slá um sig með og kemst upp með það. Flestir tölvuhakkarar eru Sporðdrekar, sem og flestir sem halda að þeir verði frægir fyrir að vera virkir í kommentum. Vogin skammast sín fyrir Sporðdrekann af því hann vill helst kaffið sitt beint úr pokanum, borðað með skeið.
Margir Sporðdrekar hafa fundið leiðir til að reykja í sturtu. Þeim hefur aldrei verið rænt af geimverum eða verið fórnarlamb í samsæri ríkisstjórnarinnar.
Áætlun Sporðdrekans um heimsyfirráð mun aldrei verða að veruleika, því hún felur jú í sér að hann sé við stjórnvölinn. Það er erfitt fyrir Sporðdreka að samþykkja að Star Trek sé skáldskapur.
Sporðdrekar nota útskýringar til að lýsa heimspekilegum hugtökum. Það er ekki að furða að Hrekkjavaka sé í miðjum mánuði Sporðdrekans. Þetta er eini tími ársins þegar falsar ásakanir, sykursýkuð hræðsla og það að vera skrímsli veldur ekki handtöku.
Sporðdrekar hafa mikla kynorku, því það gefur þeim enn eitt tækifæri til að reykja (vonandi eftir á). Sporðdrekar hafa mörg ráð til að gefa í málum sem þeir hafa ekki áhuga á. Ef þú vilt finna út hvort einhver er Sporðdreki, þá skaltu spyrja hann viðeigandi spurningar. Eftir fimm mínútna þögn, mun svarið verða „Fyrirgefðu, hvað?“
Sporðdrekar eru oft loðnir og halda að það geri þá illilegri. Þetta á sérstaklega við um konur í Sporðdrekanum. Sporðdrekar svindla í happdrættum og ef það er sjálfvirkt, geta þeir hakkað það.