Hjartaknúsarinn Brad Pitt varð sextugur þann 18. desember síðastliðinn en hann fagnaði afmælinu með kærustunni sinni, Ines de Ramon, sem er 33 ára gömul. Staðsetning fagnaðarins var viðeigandi, borg ástarinnar, París.
Brad og Ines hafa verið að hittast í tæpt ár en haldið sambandinu að mestu frá kastljósi fjölmiðlana.
Parið byrjaði að hittast í nóvember í fyrra en Ines er næringarfræðingur, mikil áhugakona um heilsu og hreyfingu, talar þrjú tungumál og er varaforseti skartgripafyrirtækisins Anita Ko.
Hún var áður gift leikaranum Paul Wesley, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í geysivinsælu þáttunum Vampire Diaries.
Brad og Ines gerðu sér glaðan dag í borginni rómantísku, fóru á tónleika og síðan var blásið veislu á lúxushóteli í borginni. Kemur fram í erlendum að hluti barna Pitts hafi fagnað afmælinu með föður sínum sem og nánir vinir hans.
Brad á sex börn með leikkonunni Angelina Jolie þau Maddox 22 ára, Pax 19 ára, Zahara 18 ára, Shiloh 17 ára og tvíburanna Vivienne og Knox 15 ára.
Vitað er að samband stórleikarans við elstu börnin er stirt í meira lagi. Í nóvember var greint frá Instgram-færslu Pax þar sem hann kallaði leikarann fyrirlitlegan föður og fyrsta flokks skíthæl. Þá felldi Zahara niður eftirnafn föður síns og skartar nú aðeins eftirnafni móður sinnar.