fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Göngumaður fannst kaldur og hrakinn – S.O.S. merki úr vasaljósi

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 19. desember 2023 21:06

Björgunarsveitir eru að fara af stað.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út fyrir um hálftíma síðan til að leita að tveimur göngumönnum nálægt fyrri gosstöðvum á Reykjanesskaga. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið ræst út.

VF sögðu fyrst frá á Facebook síðu sinni.

„Flugmaður lítillar einkaflugvélar, sem var að fljúga þarna yfir, tók eftir ljósmerki frá jörðu sem var hægt að lesa sem S.O.S. merki frá vasaljósi,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

Talið er að göngumennirnir séu tveir en ekki er vitað neitt um þá. Til dæmis ekki hvort þetta séu Íslendingar eða útlendingar.

Merkjasendingarnar komu ekki frá núverandi gosstöðvum heldur fyrri, ekki langt frá Litla Hrút. Hugsanlegt er að þeir hafi verið á leiðinni að nýju gosstöðvunum. „Hvort að viðkomandi hafi verið á leiðinni þangað er ómögulegt að segja,“ segir Jón Þór.

Leit er nú rétt að hefjast. „Fólk er að tínast á staðinn. Það er líka búið að kalla úr þyrlu Gæslunnar,“ segir Jón Þór.

Uppfært:

Göngumaðurinn reyndist vera einn. Hann var kaldur og hrakinn og fannst á milli Keilis og Kistufells.

Lögreglan á Suðurnesjum ítrekar fyrir fólki að ana ekki af stað að gosinu. Aðstæður eru mjög erfiðar og vegalengdin löng.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump

J.D. Vance verður varaforsetaefni Donald Trump
Fréttir
Í gær

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni

Pálmi Þór lést af slysförum á Spáni
Fréttir
Í gær

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“

Fjárfestar hafa sölsað undir sig tæplega 90% seldra íbúða á árinu – „Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt“
Fréttir
Í gær

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“

Pawel sakar stjórnvöld um aumingjaskap – „Hvernig væri að kalla stjórnendur þessa miðils í skýrslutöku“