Máli Sýnar gegn Jóni Einari Eysteinssyni, sem hefur streymt sjónvarpsstöðvum félagsins á netinu, var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Stefnan var of óskýr að mati dómara.
Í stefnunni segir að Jón Einar hafi frá árinu 2021 streymt læstum sjónvarpsstöðvum í gegnum síðuna www.iptv-ice.com og tekið gjald fyrir. Sýn vildi að Jón Einar upplýsti um bókhald sitt til að séð yrði hvað hann hefði grætt á þessu. Þá var þess krafist að hann yrði dæmdur til refsingar fyrir að dreifa höfundarréttarvörðu efni og að viðurkennd yrði bótaskylda í málinu.
DV greindi frá stefnunni í maí síðastliðnum. Jón er á sextugsaldri með skráð lögheimili í Mosfellsbæ en hefur verið búsettur á Spáni.
Jón hefur einmitt auglýst streymissíðuna í gegnum Facebook hópa Íslendinga sem búsettir eru eða dvelja á Spáni. Meðal annars hópunum „Íslendingar á Spáni“ og „Golfspjallið“ sem telja mörg þúsund meðlimi.
Einn viðskiptavinur Jóns lét Sýn vita af þessu en sá hinn sami vissi ekki að Jón hefði ekki leyfi fyrir dreifingunni frá fyrirtækinu. Hann hafði greitt 37 þúsund krónur fyrir þjónustuna.
Sýn telur að Jón hafi valdið efnishöfundum, íslenskum sem erlendum sjónvarpsstöðvum sem og öðrum rétthöfum verulegum fjárhagslegum skaða.
Í frétt Vísis af málinu frá því í maí kemur fram að Jón hafi hafnað því að hafa makað krókinn af starfseminni. Þetta væri meira í ætt við góðgerðastarf sem hann væri að vinna.
„Ég hef verið að hjálpa fólki á Spáni með íslenska sjónvarpið, aðallega með RÚV og erlendar stöðvar. Þetta er bagalegt fyrir gamla fólkið á Spáni, það fær ekki aðgang að íslenska sjónvarpinu. Ég er bara milligöngumaður í þessu hér. Það eru svo margir í þessu á Spáni sem eru að bjóða þessa þjónustu,“ sagði Jón við Vísi á sínum tíma.
Hann sagði starfsemina ekki eins og lögmenn Sýnar lýsa í stefnunni. Heldur að hann kaupi búnað og áframselji hann og setji upp fyrir gamalt fólk. Fyrir þessa vinnu rukki hann vitaskuld.
Í dóminum segir að Sýn hafi kosið að orða kröfugerð sína með þeim hætti að krefjast upplýsinga um fjölda þeirra sem Jón hefur veitt aðgang að sjónvarpsstöðvum og streymisveitum á tilgreindu tímabili auk upplýsinga um tekjur af þeirri þjónustu.
„Stefnandi hefur á hinn bóginn ekki afmarkað þessa kröfugerð sína nánar til samræmis við framangreint ákvæði 2. gr. höfundalaga, sbr. 1. gr. laga nr. 9/2016. Af þeim sökum er óhjákvæmilegt að líta svo á að tilgreining þeirra athafna sem vísað er til í kröfugerðinni sé of opin og óskýr um þá háttsemi sem til er vísað og standist því ekki áskilnað d-liðar 80. gr. laga nr. 91/1991 um skýrleika kröfugerðar,“ segir í dóminum.
Vegna þessa og fleiri atriða taldi dómarinn að málatilbúnaðurinn væri í andstöðu við meginreglur einkamálaréttarfars um ljósa og skýra kröfugerð. Ekki væri því hjá komist að vísa málinu frá í heild sinni. Var Sýn gert að greiða Jóni 300 þúsund krónur í málskostnað.