Poly Voyager Focus 2 eru bestu þráðlausu vinnuheyrnartólin 2023, að mati nytimes.com. Helstu kostir heyrnartólanna er langlíf rafhlaða, gæða hljóðnemi og gríðarlega þægilegir púðar við eyrun. „… þessi þráðlausu heyrnartól hafa alla eiginleika sem við leitum að,“ segir í umsögn New Tork Times.
Þráðlaus vinnuheyrnartól eru hönnuð með sérstakar þarfir í huga, þau gera notanda kleift að hringja og taka á móti símtölum jafnvel þó að þó að hann sé mörgum metrum frá vinnustöð sinni. Í rýni nytimes.com segir að hægt sé að nota Poly Voyager Focus 2 í símtali allt að 10 metra frá farsíma, en vitanlega fer það eftir hönnun skrifstofurýmisins hversu langt hægt er að nota heyrnartólin frá símanum. Ekki má gleyma að vinnuheyrnartól þurfa að styðja við Samþætt samskipti (e. Unified Communication) sem mörg afþreyingarheyrnartól gera alls ekki, en það er lausn sem gerir notanda mögulegt að nota heyrnartólin fyrir fleiri en eitt tæki í einu.
„Það sem er áhugavert við Poly Voyager Focus 2 er svokölluð Poly Acoustic Fence-tækni; margir hljóðnemar, sem búa til hljóðvörn og ýta óþarfa hljóðum frá samtali notanda. Þau eru einnig með Dynamic Mute Alert sem skynjar ef þú ert í símtali og búnaðurinn er á „mute“. Ennfremur eru tvö stig af hljóðdempun (e. Noise Cancellation). Þessu til viðbótar eru heyrnartólin með gríðarlega öfluga rafhlöðu sem gefur notanda allt að 25 klst. taltíma,“ segir Gísli Þorsteinsson vörustjóri hjá Opnum kerfum.
Hann segir Poly Voyager Focus 2 lang vinsælustu Poly heyrnartólin hjá OK, sem er eini þjónustuvottaði söluaðili Poly á Íslandi.