fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Kom völva í veg fyrir árás nasista á Reyðarfjörð?

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 16. desember 2023 11:30

Völvuleiðið á Hólmahálsi er þar sem varðan er. Horft út Reyðarfjörð. Ljósmynd: Mikael Sigurðsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýútkominni bók sinni, Völvur á Íslandi, fjallar Sigurður Ægisson um 70 völvuleiði á landinu. Sumum þeirra fylgja magnaðar sögur. Eitt þeirra er á Hólmahálsi í Reyðarfirði. 

Við grípum hér niður í frásögnina af völvunni sem þar hvílir, en kaflinn er birtur með leyfi útgefanda.

Ásmundur Helgason (1872–1948), útvegsbóndi, fræðimaður og rithöfundur frá Bjargi í Reyðarfirði, segir meðal annars í grein frá 1945: „Á fjallseggjunum er Snæfuglinn. Af kolli hans er víðsýni mikið, og allgott að klífa upp á hæstu brún hans. Gamlir bændur sögðu, að það yrði að vera 5 stiga hiti á R. í byggð til þess, að ekki snjóaði á Snæfugl. Niður af Snæfuglinum í Krossaneslandi, sem snýr að Reyðarfirðinum, er alllangur hjalli, en ekki mjög breiður, í daglegu tali nú nefndur Valahjalli. Pabbi minn, sem var fæddur og alinn upp á Krossanesi, sagði mér, að sér hefði verið sagt, að hann héti Völvuhjalli. Hann sagði mér eftirfarandi sögu um tilefni nafnsins. 

Á hjallanum er rennisléttur grasflötur allstór. Þar er tóttarbrot nefnt Völvutótt. Þarna átti valva ein að hafa átt heima endur fyrir löngu. Skammt þaðan er tær uppsprettulind. Annars virðist nú ekki vera þar mjög búsældarlegt. Þegar valvan fann burtfarartíma sinn úr heimi hér nálgast, bað hún þess, að hinar jarðnesku leifar sínar yrðu jarðsettar á einhverjum þeim stað, þar sem bezt væri útsýni yfir Reyðarfjörð. Ef það væri gert, sagðist hún skyldi sjá svo fyrir, að svo lengi sem nokkur flís af beinum sínum væri óbrotin, gæti engum útlendum reyfurum tekizt að ræna fólki, fénaði, eða fjármunum manna innan þess fjallahrings, sem umlykur Reyðarfjörð. Þetta var gert og líkama hennar valinn legstaður við veginn á Hólmahálsi, milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Það eitt er víst, að hvergi í byggð sést betur yfir Reyðarfjörð en þar. Leiðið sést þar enn, grasi gróið við veginn og nefnist Völvuleiði. 

Þetta loforð völvunnar hefur þótt endast vel, sérstaklega þegar Tyrkir komu hingað til lands og rændu fjármunum og fólki og drápu marga menn á Austfjörðum nema á Reyðarfirði. Út af honum var svo sterkur norðvestan stormur, að skip þeirra og bátar, sem reyndu að ná þar landi, urðu frá að hverfa og hrakti til hafs. Þannig fóru þeir bónleiðir til búðar eftir margendurteknar tilraunir, sem þeir að sögn gerðu til að ná landgöngu við þennan stærsta fjörð á Austurlandi. Þá skal þess getið hér, sem satt er, að það var ofan við þennan hjalla, sem þýzka herflugvélin rakst á klettabelti um vornótt í maí 1941, og fimm menn fórust og vélin mölbrotnaði. Hvort valva sáluga hefur villt sendimönnum Hitlers sýn í sendiför þeirra til Austfjarða, verður ekki dæmt um af mér.“  

Sigurbjörn Snjólfsson (1895–1980) frá Svínafelli í Hjaltastaðaþinghá, Norður-Múlasýslu, kvaðst í viðtali 25. janúar 1979 muna vel eftir því, að „gamla sagan“ hefði rifjast upp fyrir mörgum eystra í og eftir fyrri heimsstyrjöldina, 1914–1918, og margir trúað því, að áhrínsorð völvunnar hefðu komið í veg fyrir árás Miðveldanna á Austurland, enda „var eiginlega ekkert sem gerðist …. í þessum landshluta ….“ 

            Guðrún Sigurðardóttir (1883–1971), fædd á Birnufelli í Norður-Múlasýslu en alin upp á Eskifirði, sagði frá því í viðtali 13. júlí 1965, að þegar hún og önnur börn á hennar reki voru að ganga til spurninga inni á Hólmum, til fermingar, hafi þau alltaf stansað hjá völvuleiðinu og látið í þakklætisskyni fyrir vernd hennar í aldanna rás einhvern smápening í holu sem var í því. Á þeim árum lá vegurinn frá Eskifirði til Reyðarfjarðar skammt austan við leiðið. Guðni Jónsson (1891–1974), af Fossárdal í Berufirði, trésmíðameistari á Eskifirði, kvaðst í viðtali 9. júní 1969 einu sinni hafa komið að völvuleiðinu og „lét eins og margir góðir menn“ smápening í holuna. „Og ég hugsa nú,“ bætti hann við, „að [gjafirnar] hafi fengið að vera í friði, að það hafi verið það sterk trú á þessu, að það hafi ekki verið nokkur sem hafi látið sér detta í hug að fara að róta í leiðinu“ til að næla sér í þessa fjármuni. 

Að auki hefur tíðkast, allt fram á 21. öld, þótt ekki fari það hátt, að fólk eigi gjarnan stund við leiðið og biðji þá völvuna um huggun og styrk í ýmiskonar raunum, bæði fyrir sig og ástvini.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“