fbpx
Mánudagur 25.nóvember 2024
Eyjan

Sigríður er orðin þreytt á þófinu og skorar á þingmenn – „Þetta er samfélagslegt sanngirnismál“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 14. desember 2023 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Margt undarlegt og óvænt hefur á daga okkar drifið síðasta mánuðinn og eftirleikur þess að þurfa að yfirgefa öryggi sitt í snarhasti hefur reynst mörgum mikil og sár þrautaganga. Fjölmörg okkar eiga ekki afturkvæmt til heimila okkar, en við höfum skotist klökk til Grindó með pallbíl að láni, til að sækja kaffikönnuna og eldhússtólana, handklæðin og jólafötin. Við höfum velt fyrir okkur hvort pláss sé fyrir eitthvað af jólaskrautinu á nýja staðnum, hvort við verðum yfirleitt á þeim stað yfir jólin, hvar við verðum eftir áramót og hvernig við eigum að brúa öll þau bil sem skapast hafa í lífum okkar og okkar á milli,“ 

segir Sigríður María Eyþórsdóttir, kirkjuvörður Grindavíkurkirkju, tónlistarmaður og Grindvíkingur, í skoðunarpistli á Vísi.

Rúmur mánuður er liðinn síðan tæplega 4000 íbúar þurftu að flýja heimili sín úr litla bænum á suðvesturhorninu. 

„Allur almenningur virðist líta þannig á að hér sé samfélag í sárum, og á ögurstundu og neyðartímum þurfi reglur að vera sveigjanlegar og manngildi höfð að leiðarljósi í hvívetna, en þetta hefur því miður ekki verið raunin.

Heimilislausir og geðshrærðir Grindvíkingar hafa í miðju áfalli þurft að steyta hnefa og byrsta sig til að fá fram það sem lang flestum landsmönnum þykir fullkomlega eðlileg krafa. Húsnæðislánagreiðendur hafa þurft að krefjast réttlátrar meðferðar í lánakerfinu og hafa viðskiptabankarnir þrír og íbúðalanasjóður dregið til baka kröfur um uppsöfnun vaxta og verðbóta á greiðslufrystingartíma húsnæðislána en aðrir lánveitendur ekki, eins og kunnugt er.“

Mánuður af sama japlinu hjá lífeyrissjóðum

Sigríður María segir lífeyrissjóðir nú bera fyrir sig því að hér sé við ofurafl að etja í formi lagabálka „eftir að hafa teygt lopann í heilan mánuð, þrátt fyrir að hafa fullyrt strax við upphaf umræðna að þessi undanþága samhæfist ekki reglum lífeyrissjóða. Einhvern manndóm hefur virst vanta til að standa við þá fullyrðingu því það hefur tekið þennan mánuð af sama japlinu -um að nú sé verið að skoða þetta, nú skuli funda og síðast en ekki síst að fullur skilningur sé á kröfum lánagreiðenda frá Grindavík og samkenndin sé mikil- til að gefa út þessa endanlegu yfirlýsingu í dag.“

Segir Sigríður það nú orðið ljóst að lífeyrissjóðir hafa ekki áhuga á að taka þátt í að hliðra til reglum, skapa undanþáguheimildir eða vinna að nokkru leyti til að koma til móts við kröfur lífeyrissjóðseigenda sem borga mánaðarlega samviskusamlega í sjóðinn.

Sigríður María segir að svo af þessum breytingum geti orðið þarfnast greinilega hjálpar við.

„Nú kalla ég til þess fólks sem við kusum á þing. Fólkið sem við völdum til að vinna fyrir okkur. Nú er rúmur mánuður liðinn- og lopateygjur lífeyrissjóðanna eru á enda. Hundrað fjölskyldur bíða, hundrað fjölskyldur sem greitt hafa í þá sjóði sem ætlaðir eru sem þeirra skjól og vörn þegar lífið tekur níutíu gráðu beygju inn í óvissuna. Ég skora á þingheim að horfa til okkar fyrir frí, sýna kjark og klára dæmið. Hundrað fjölskyldum vantar breytingar á lögum, strax.

Viðbætur í lögum um lánveitingar lífeyrissjóða og annara húsnæðislánaveitenda þess efnis að við náttúruhamfarir eða aðrar utanaðkomandi óviðráðanlegar aðstæður skuli lánveitendum heimilt, eða jafnvel skylt, að stöðva afborganir í afmarkaðan tíma og á sama tíma fella niður vexti og verðbætur og annan kostnað sem af getur hlotist hljómar ekki flókið í framkvæmd,“ segir Sigríður María. „Þetta er samfélagslegt sanngirnismál.“

Að lokum óskar hún þingmönnum öllum, svo og stjórnendum lífeyrissjóða góðrar og gleðiríkrar jólahátíðar.. heima í sinni stofu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins

Orðið á götunni: Atlaga Stefáns Einars að Þórði Snæ hjálpar Samfylkingu – tryggir jafnvel kjör fyrrum ritstjóra Fréttablaðsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur

Steinunn Ólína skrifar: Óheiðarleiki er smitsjúkdómur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Ræðum ESB!
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka

Þorsteinn Pálsson skrifar: Sér íslenskir skattar og yndi stjórnlyndra flokka