Aðdáendur bresku konungsfjölskyldunnar og þá sérstaklega Lúðvíks prins, fimm ára sonar hjónanna Vilhjálms og Katrínar, krónprins og prinsessu af Wales, fengu aldeilis eitthvað fyrir sinn snúð í vikunni.
Um síðustu helgi var árlegt jólakort fjölskyldunnar birt.
Sjá einnig: Árleg jólamynd veldur aðdáun og furðu – Vantar líkamshluta að mati netverja
Á mánudag fengu aðdáendur síðan nýja innsýn í góðgerðarstarf Kötu og barnanna í myndbandi sem Kensington-höll deildi á samfélagsmiðlum.
Þar er rifjuð upp nýleg heimsókn þeirra til Baby Bank í Maidenhead, Berkshire, nálægt heimili fjölskyldunnar í Windsor, þar sem börnin og móðir þeirra mættu með fatnað og fleira og lögðu síðan hönd á plóg við að fara yfir leikföng, fatnað og aðra hluti sem gefnir eru þeim sem minna mega sín.
Lúðvík litli sló í gegn hjá aðdáendum fjölskyldunnar, eins og sjá má þá er hann óskipulagður við fatnaðinn og skutlar fötunum bara upp á borð, meðan móðir hans og systkini fara betri höndum um og brjóta allt vel og vandlega saman.