Veitingastaðurinn Vefjan fór á nýja kennitölu þegar Reynir Bergmann og kona hans Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir seldu hann í janúar. Gamla félagið er nú gjaldþrota.
Sólveig Ýr var ein skráð sem eigandi að félaginu Vefjan ehf í Gnoðavogi 44, þar sem Vefjan er enn til húsa. Í Lögbirtingablaðinu kemur fram að Héraðsdómur Reykjavíkur hafi úrskurðað félagið gjaldþrota þann 29. nóvember síðastliðinn. Er skorað á alla sem eiga kröfur í búið að lýsa þeim fyrir skiptastjóra.
DV greindi frá því þann 30. janúar að Sólveig og Reynir hefðu selt Vefjuna, sem þau stofnuðu árið 2020 á grunni matarvagns á Selfossi sem þau stofnuðu í apríl það ár.
Greint var frá því að nýjir eigendur myndu taka við staðnum þann 1. febrúar síðastliðnum. Greindi Reynir frá því að nýjir eigendur væru þeir Egill Darri Makan Þorvaldsson, knattspyrnumaður, og Daníel Örn Einarsson, fyrrverandi eigandi veitingastaðarins Spot í Kópavogi.
„Við seldum í raun bara því við vorum farin að finna fyrir leiða og metnaðurinn og ástríðan farinn að minnka. Einnig vegna annarra verkefna sem við erum að vinna í þá töldum við best að koma gullinu hennar Sólveigar í hendur aðila sem vilja taka þetta enn lengra og geta sinnt Vefjunni af ástríðu,“ sagði Reynir.
Það eru hins vegar ekki Egill Darri og Daníel Örn sem eru raunverulegir eigendur að Vefjunni heldur Sigurður Elí Bergsteinsson sem á 100 prósent hlutafjár í nýju félagi sem stofnað var utan um rekstur Vefjunnar í janúar síðastliðnum, EM Verktak ehf.
Sigurður Elí er einnig eigandi skemmtistaðarins EXIT. Hann rak einnig kleinuhringjamatarvagninn Dons Donuts þar til í apríl síðastliðnum.
Sigurður Elí komst í fréttirnar í sumar þegar hann lagði Porsche bifreið sinni, með einkanúmerinu EXIT, í stæði fyrir hreyfihamlaða nálægt Firðinum í Hafnarfirði og uppi á umferðareyju í Reykjavík.