fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Dillandi skemmtileg bók um Loka

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 11. desember 2023 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loki er þekktur fyrir prakkarastrik og ekki gengur honum vel að sanna fyrir Óðni að hann geti hagað sér almennilega! Þetta er önnur bókin í ritröðinni um Loka og dvölina á jörðinni sem Óðinn skikkaði hann til.

Bráðskemmtileg og fyndin bók með rætur í menningararfinum. Fyrsta bókin um Loka og leiðangur hans kom út hér á landi árið 2022. Bókin Loki: leiðarvísir fyrir prakkara er í dagbókarstíl. Þar segir frá því þegar Loki er sendur til jarðar í formi 11 ára drengs og er tilgangur ferðarinnar að sanna fyrir Óðni og hinum ásunum að hann geti lært að vera almennilegur og hætt öllum prakkarastrikum. Hann á að halda dagbók og skrá niður hvernig honum gengur en dagbókin er þeim töfrum gædd að hún veit hvenær Loki er að ljúga. Hann kemst því ekki upp með neitt múður! Í för með Loka til jarðar er Þór, þrumuguðinn sjálfur, og á hann að látast vera tvíburabróðir Loka. Hins vegar þolir Loki ekki Þór, sem er alltof góður í íþróttum og vinsæll meðal skólasystkina, að mati Loka.

Heimdallur og Hyrrokkin eru send með í leiðangurin og eiga þau að látast vera foreldrar Loka og Þórs. Þau taka hlutverk sitt mjög alvarlega. Heimdallur drekkur í sig uppeldisráð úr ýmsum uppeldisbókum, ekki síst um uppeldi baldinna drengja, og Hyrrokkin leggur áherslu á sameiginlega göngutúra, heilsunnar og fjölskylduheildarinnar vegna, en verður óvart vinsæl sem áhrifavaldur á samfélagsmiðlum.

Dagbók Loka byrjar í -3000 dyggðastigum og hann þarf að komast í +3000 dyggðastig, en honum gekk ekki sérstaklega vel í þessu verkefni í fyrstu bókinni og nú fáum við að fylgjast með hvort þetta takist hjá honum í þetta sinn. Kannski ber ekki Loki alltaf ábyrgð á öllu sem úrskeiðis, eða hvað? Loki: leiðarvísir fyrir prakkara er skemmtileg bók með rætur í menningararfinum. Höfundur myndlýsir og er textinn brotinn upp með myndlýsingu sem auðveldar lestur. Dillandi skemmtileg bók.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“