Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um grunsamlegar mannaferðir í Vallahverfinu í Hafnarfirði í nótt. Það er um tvo menn sem gengu á milli húsa og tóku í hurðarhúna. Í skýrslu lögreglu er ekki greint frá því hvort þeir fundust eða ekki.
Hins vegar var maður handtekinn í hverfinu vegna líkamsárásar og vistaður í fangaklefa.
Nokkuð var um ölvun og ölvunartengd brot á höfuðborgarsvæðinu í nótt, einkum í miðborg Reykjavíkur. Nokkrir stútar voru teknir sem annað hvort voru undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og sumir ekki með ökuréttindi í gildi. Einn stúturinn sem handtekinn var reyndist líka vera eftirlýstur af lögreglu og var hann vistaður í fangageymslu.
Í Breiðholti harðneitaði einn stúturinn að gangast undir fíkniefnapróf og var hann sviptur ökuréttindum í eitt ár.
Á Seltjarnarnesi var kona í annarlegu ástandi til vandræða og var henni skutlað heim. Enda engar kröfur gerðar á hana.
Í Árbænum var tilkynnt um mann sem lá ofurölvi í strætóskýli. Samkvæmt lögregluskýrslu var eftir bestu getu reynt að aðstoða manninn og koma honum heim en sökum ástands var ekki með nokkru móti hægt að fá hann til að segja lögreglu hvar hann ætti heima. Var niðurstaðan því sú að vista hann í fangageymslu þar til ástand hans lagast.
Þá var kveikt í bíl í Breiðholtinu. Að sögn lögreglu er brennuvargsins enn þá leitað.