Háttsemi þriggja kvenna, sem starfa hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem átti sér stað í fræðsluferð íslenskra lögreglumanna og saksóknara lögregluembætta til Póllands dagana 7.-11. nóvember er til skoðunar hjá embættinu. Pöntuðu konurnar sér þjónustu karlkyns strippara, en fræðsluferðin var um hatursáróður.
„Málið er litið alvarlegum augum enda eru ríkar kröfur gerðar til starfsmanna embættisins um að vera til fyrirmyndar í hvívetna,“ segir Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við Heimildina.
Námskeiðið var haldið á vegum mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, sem heyrir undir ríkislögreglustjóra, og voru þar fulltrúar ýmissa lögregluembætta á landinu. Yfirskrift námskeiðsins var „Hatursglæpir – uppgangur öfgaafla“ og var haldið í bænum Auschwitz, þar sem fanga- og útrýmingarbúðir nasista voru í seinni heimsstyrjöldinni og var einn dagur tileinkaður útrýmingarbúðunum þar sem farið var í skoðunarferð.
Þátttakendur á námskeiðinu fóru að skemmta sér eitt kvöldið í ferðinni og ákváðu konurnar að panta þjónustu karlkyns strippara. Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar tóku konurnar fjölda mynda þetta kvöld og deildu í lokuðum hópi á samfélagsmiðlinum Snapchat. Í frétt Heimildarinnar kemur fram að þetta hafi lagst misvel í aðra sem voru í ferðinni og voru vitni að uppákomunni. Einnig mun vera mikil ólga vegna málsins innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Heimildin fékk ekki staðfest hvort einhver kvennanna hafi fengið áminningu og/eða verið settar í tímabundið leyfi frá störfum vegna málsins, né hvort um brot á siðareglum væri að ræða.
Frétt Heimildarinnar má lesa í heild sinni hér.