Ari Bragi Kárasón tónlistarmaður og Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni í apríl. Von er á dreng en fyrir á parið dótturina Ellen Ingu sem er þriggja ára.
Í færslu á Instagram má sjá þau skera kynjaköku og kremið reynist blátt.
View this post on Instagram
Fjölskyldan er búsett í Kaupmannahöfn, en þangað fluttu þau í ágúst árið 2021. Ari leikur með fremstu jazztónlistarmönnum Danmerkur og Dóróthea er í meistaranámi. Hún er með BS-gráðu í sálfræði og meistaragráðu í markaðsfræði og starfar sem svæðissölustjóri fyrir danska hönnunarfyrirtækið Design Letters og sér um alla markaði á Norðurlöndunum.