Í nýlegri ræðu sem hann flutti frá Kreml réðst hann harkalega að Lettlandi og meðferð Letta á rússneska minnihlutanum þar í landi.
„Ef þeir fara svona með fólk sem hefur búið í landinu, unnið í landinu og lagt góða hluti af mörkum og fara svona svínslega með það, þá munu þeir að lokum standa frammi fyrir einhverju viðbjóðslegu,“ sagði Pútín.
þegar hann segir að Lettar hafi „farið svona með fólk“ á hann væntanlega við Rússafóbíu en hann hefur mikið rætt um hana síðan hann lét her sinn ráðast inn í Úkraínu.
Hann sagðist ekki telja að fólk verði hamingjusamt við að framfylgja pólitík af þessu tagi. Hvað varðar rússneska minnihlutann í Lettlandi sagðist hann ekki vita hversu stór hann er nú en áður hafi 40% landsmanna verið rússneskumælandi, nú séu hins vegar ekki margir eftir.
Samkvæmt tölum frá World Directory of Minorities and Indigenous Peoples eru 25,6% íbúa Lettlands af rússneskum uppruna. Það eru um 450.000 manns.