Þórdís greindi frá því á Facebook að hún hefði fengið boð frá ráðuneytinu en því miður orðið að afþakka vegna afstöðuleysis íslenskra stjórnvalda í málefnum Ísraels og Palestínu. Birti Þórdís svar sitt þar sem hún sagði meðal annars:
„Ég geri mér fulla grein fyrir því að margt af ykkar starfsfólki er í sjálfu sér ekki í stöðu til að hafa áhrif. En innan ykkar veggja – í þessu húsi valdsins – eru svo sannarlega líka þau sem fara með ákvörðunarvaldið fyrir hönd þjóðarinnar.
Mig langar því að biðja þig að koma á framfæri einlægri ósk um a) að veita öllum Palestínumönnum hér á landi alþjóðlega vernd af mannúðarástæðum, b) greiða fyrir tafarlausri fjölskyldusameiningu, c) fordæma þjóðarmorðið fullum fetum á alþjóðavettvangi og d) slíta stjórnmálasambandi við Ísraelsríki.“
Færsla Þórdísar vakti mikla athygli og var henni hrósað í hástert í athugasemdum við færsluna. Ein athugasemd skar sig þó úr og var hún frá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, prófessor í stjórnmálafræði, en óhætt er að segja að hann hafi verið ósáttur við afstöðu Þórdísar.
„Þetta er ótrúleg hræsni. Þú lokar augunum fyrir óumdeilanlegum staðreyndum,“ sagði Hannes sem taldi alls upp 20 atriði um stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs. Sagði Hannes meðal annars að Hamas-samtökin hefðu á stefnuskrá sinni að eyða Ísrael. Þá hefðu Hamas-samtökin gert villimannslega árás á Ísrael þann 7. október síðastliðinn og Ísraelsher neyðst til þess í sjálfsvörn að fara inn í Gaza. Þá benti hann á að Hamas hefði tekið gísla sem er brot á alþjóðalögum og noti lifandi skildi, bæði konur og börn, sem einnig er brot á alþjóðalögum. Þá sendi Hamas reglulega eldflaugar inn í Ísrael.
Hannes klikkti út með þessum orðum:
„Þeir, sem halda núna fundi til stuðnings Palestínumönnum, eru í raun að styðja Hamas og hina spilltu gerræðisstjórn á vesturbakkanum. Þeir eru að leika leikinn, sem Hamas hafði lagt á ráðin um með árásinni á Ísrael og notkun arabískra kvenna og barna sem lifandi skjalda. Þú ert ein af þeim. Þú skipar þér á bekk með hryðjuverkamönnum, nasistum og Gyðingahöturum.“
Færslu Þórdísar og svar Hannesar má sjá hér að neðan: