Þessi hefð, eða öllu heldur hugmynd, er svo rótgróin í Bandaríkjunum að ekkert fær hreyft við henni. Jólasveinninn hrópar Hó, hó, hó og kemur á sleðanum sínum með jólagjafir. Það er því árviss atburður að mörg þúsund eftirvæntingarfull börn neita að fara að sofa því þau vilja verða vitni að því þegar jólasveinninn kemur með jólagjöfina þeirra. Margir hafa því fundið sig knúna til að birta færslur á Internetinu um hvernig er hægt að fá börnin til að sofa þrátt fyrir að jólasveinninn sé væntanlegur.
Fyrsta jólatréð
Fyrsta skráða heimildin um að jólatré hafi verið sett upp innanhúss er frá Boston í Massachusetts árið 1832. Þýski innflytjandinn Charles Follen setti þá upp jólatré heima hjá sér. Í kjölfarið hófst markaðsvæðing jólanna í Bandaríkjunum og nú þekkja eflaust flestir jarðarbúar nokkuð eða jafnvel vel til bandarískra jólahefða.
Að kvöldi aðfangadags setja Bandaríkjamenn kökur og mjólk á ákveðinn stað fyrir jólasveininn og fara síðan að sofa, eða reyna að sofna, og bíða jóladagsmorguns þar sem gjafaæði rennur á fólk og það rífur upp pakkana sína.