fbpx
Mánudagur 20.janúar 2025
Fréttir

Lögregla fær að skoða síma í peningaþvættismáli – Stöðvaður með fúlgur fjár í Leifsstöð

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 6. desember 2023 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að lögregla fái að rannsaka innihald iPhone-farsíma einstaklings sem grunaður er um peningaþvætti hér á landi. Héraðsdómur kvað upp úrskurð sinn þann 29. nóvember síðastliðinn og staðfesti Landsréttur úrskurðinn í gær.

Maðurinn var stöðvaður ásamt konu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á leið úr landi þann 21. nóvember síðastliðinn. Við leit tollvarða fundust í fórum þeirra samtals 29.730 evrur og 26.000 krónur í reiðufé.

Að sögn lögreglu gat fólkið ekki gefið með skýrum hætti hver lögmætur uppruni fjármunanna var og voru þau því handtekin og flutt á lögreglustöð. Peningarnir og farsímar sem fólkið var með á sér voru haldlagðir í þágu rannsóknar málsins.

Maðurinn sem um ræðir sagði að peningarnir sem hann var með á sér væru hans eign og um væri að ræða launagreiðslur og sparnað. Kvaðst hann vera á atvinnuleysisbótum núna. Hann neitaði að heimila lögreglu afritun og rannsókn á innihaldi símans og kvað það vera einkamál sem væri í símanum.

Í niðurstöðu héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti, kemur fram að miðað við fyrirliggjandi rannsóknargögn þyki ástæða til að ætla að upplýsingar sem geta skipt miklu fyrir framgang rannsóknar málsins fáist með umbeðinni rannsóknaraðgerð.

Nær heimildin til leitar, skoðunar og afritunar á þeim rafrænu gögnum sem síminn kann að geyma og þeim skýjaþjónustum sem hafa verið notaðar með símanum, hvort sem er að ræða samfélagsmiðla, samskiptaforrit, tölvupósta eða gagnageymslur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum

Samfylkingin fær á baukinn: Segir að kjósendur séu hafðir að fíflum
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?

Verður Áslaug Arna næsti formaður Sjálfstæðisflokksins?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því

Móðir keypti pennaveski fyrir dætur sínar á Shein – Dauðbrá þegar hún sá hvað var í því
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi

Tálbeituhópurinn: Maður á Akranesi þungt haldinn eftir misþyrmingar með járnkylfum og hnífi