fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Fordæma „rógburð“ gegn Ragnari Þór – „Fjarstæðukenndur uppspuni“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. desember 2023 14:02

Ragnar Þór formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Eflingar hefur sent frá sér harðorða tilkynningu þar sem fordæmdar eru yfirlýsingar framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra lífeyrissjóðsins Gildis um framgöngu Ragnars Þór Ingólfssonar, formanns VR.

Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, og Bjarney Sigurðardóttir, skrifstofustjóri Gildis, sendu bréf til stjórnar VR vegna mótmæla sem gengist var fyrir í höfuðstöðvum lífeyrissjóðsins. Var þar verið að krefjast lánafyrirgreiðslu fyrir íbúa Grindavíkur sem hafa orðið að yfirgefa heimabæ sinn. Í bréfi Gildis-fólksins var framganga mótmælenda sögð hafa verið ógnandi og að starfsfólk sjóðsins hefði orðið fyrir andlegu ofbeldi.

Í yfirlýsingu Eflingar eru þessar lýsingar á því sem fram fór þann 30. nóvember sagðar fjarstæðukenndar. Eru Árni og Bjarney sökuð um að viðhafa ósannindi um fólk sem hafi staðið að friðsamlegum mótmælum. „Lúalegar árásir þeirra á Ragnar Þór Ingólfsson eru um leið árás á okkur, á sjóðfélaga frá Grindavík og aðra þá sem tóku þátt í umræddum mótmælum,“ segir í yfirlýsingunni, en hún er orðrétt eftirfarandi, undir fyrirsögninni „Stjórnarmenn Eflingar fordæma rógburð framkvæmdastjóra og skrifstofustjóra Gildis gegn Ragnari Þór Ingólfssyni“:

„Við undirrituð, stjórnarmenn í Eflingu stéttarfélagi sem vorum viðstödd mótmæli í höfuðstöðvum Gildis þann 30. nóvember, fordæmum rógburð, ósannindi og árásir á mannorð Ragnars Þórs Ingólfssonar af hálfu yfirmanna skrifstofu Gildis lífeyrissjóðs.

Nákvæmlega ekkert er hæft í þeim alvarlegu ásökunum sem Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri og Bjarney Sigurðardóttir skrifstofustjóri Gildis setja fram í bréfi sínu til stjórnar VR í gær 4. desember. Í bréfinu er því haldið fram að á friðsamlegum mótmælum 30. nóvember hafi starfsfólki Gildis verið „ógnað á vinnustaðnum“, það orðið fyrir „andlegu ofbeldi“ og „[lokast] inn í rými með ógnandi aðila“.

Þessar lýsingar á atvikum eru fjarstæðukenndur uppspuni eins og tugir einstaklinga sem voru viðstödd mótmælin eru til vitnis um. Þetta er jafnframt hægt að staðfesta með fjölda ljósmynda og myndbanda sem tekin voru upp á staðnum. Mótmælin beindust augljóslega ekki gegn almennu starfsfólki Gildis heldur stjórnendum sjóðsins, og þau litlu samskipti sem fóru fram við almennt starfsfólk sjóðsins voru í alla staði kurteisleg. Þetta veit Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis vel, enda var hann viðstaddur allt sem fram fór.

Það að verkafólk sem greiðir í Gildi og lýðræðislega kjörnir fulltrúar þeirra þurfi að sitja undir grófum, ósönnum ásökunum af hálfu hálaunaðra stjórnenda sjóðsins um „ofbeldi og áreitni“ fyrir þá sök eina að nýta sér stjórnarskrárvarinn rétt sinn til mótmæla er með öllu óásættanlegt. Það er hneyksli að háttsettir stjórnarmenn Gildis skuli beita slíkum aðferðum til að þagga niður í gagnrýni.

Hálaunafólk, auðmannastéttin og valdastofnanir á Íslandi hafa á liðnum árum fært sig æ meira upp á skaftið. Þau hafa vanist því að starfa án aðhalds, án gagnrýni og án afleiðinga af gjörðum sínum. Óþol þeirra fyrir aðhaldi almennings er nú komið á það stig að þau eru tilbúin að útmála heilbrigð, málefnaleg og lýðræðisleg skoðanaskipti sem ofbeldi og áreitni. Þessi afbökun og útvötnun orðanna er lítilsvirðandi við þá sem í raun hafa þurft að þola ofbeldi og áreitni. Við gerum þá kröfu til stjórnenda Gildis að þeir gæti orða sinna og virði eðlileg mörk þegar kemur að lágmarksvirðingu við heiður og æru fólks.

Við fordæmum með öllu þá ákvörðun Árna Guðmundssonar framkvæmdastjóra og Bjarneyjar Sigurðardóttur skrifstofustjóra Gildis að ráðast með ósannindum að okkur sem tókum þátt í friðsamlegum mótmælum í höfuðstöðvum sjóðsins þann 30. nóvember. Lúalegar árásir þeirra á Ragnar Þór Ingólfsson eru um leið árás á okkur, á sjóðfélaga frá Grindavík og aðra þá sem tóku þátt í umræddum mótmælum.

Undirritað:

Sólveig Anna Jónsdóttir
Þórir Jóhannesson
Ísak Jónsson
Guðbjörg María Jósepsdóttir
Kolbrún Valvesdóttir
Michael Bragi Whalley
Guðmunda Valdís Helgadóttir
Karla Esperanza Barralaga Ocon
Olga Leonsdóttir
Sæþór Benjamín Randalsson“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest

Verð á matvöru hækkar hratt – Hér hefur það þó hækkað mest
Fréttir
Í gær

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“

Helgarferð innanlands eða erlendis? – „43.000 ódýrara fyrir okkur að fljúga til London“