Þetta segir Þorvaldur í samtali við Morgunblaðið í dag en fjallað er um málið á forsíðu blaðsins.
„Það gæti þá leitt til eldgoss eða kvikuinnskots á ennþá minna dýpi, og einhverjir skjálftar yrðu með því, en mér finnst ólíklegt að það verði beint undir Grindavík,“ hefur Morgunblaðið eftir Þorvaldi.
Bent er á það að landið við Svartsengisvirkjun hafi nú risið hærra en það var áður en skjálftahrinan í lok októbermánaðar fór af stað. Sú hrina náði hámarki 10. nóvember með myndun kvikugangs og miklu og hröðu landsigi í kjölfarið. GPS-mælingar Veðurstofunnar sýni að landið hafi risið upp fyrir núllpunkt undanfarna tvo daga en Þorvaldur segir að það segi ekki alla söguna.
„Vandamálið er að sigið er miklu meira en risið sem var búið til af kvikuinnskotinu fyrir 10. nóvember, það er eiginlega þrisvar sinnum meira. Þannig að ég held að það sé eitthvað annað þarna í gangi, eins og plötuhnik sem taki þátt í þessu, þannig að það er erfiðara að spá fyrir um hvenær eitthvað fari að gerast aftur vegna þess að þetta er ekki bara kvika,“ segir Þorvaldur við Morgunblaðið og bætir við að spenna þurfi að byggjast upp aftur og það geti tekið tíma.