Ekstra Bladet segir að mennirnir hafi verið bundnir fastir við stól og síðan var kveikt í þeim. Þeir voru báðir lagðir inn á sjúkrahús því þeir hlutu alvarleg brunasár.
Tveir voru handteknir vegna málsins, grunaðir um morðtilraun. Þeir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á föstudaginn.
Talsmaður lögreglunnar sagði ekki útilokað að fleiri verði handteknir vegna málsins.