fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Namibískir sjómenn höfnuðu boði frá félagi í eigu Samherja – Vilja fullar bætur sem dæmdar voru 2021

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 30. nóvember 2023 13:30

Sjómennirnir unnu á togaranum Heinaste en var skipt út fyrir ódýrara vinnuafl.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag í eigu Samherja hefur boðist til að borga hluta af þeim bótum sem félagsdómur í Namibíu dæmdi 23 sjómönnum á togaranum Heinaste. Lögmaður sjómannanna hefur hafnað boðinu og segir þá eiga að fá alla upphæðina með vöxtum.

Namibíska blaðið The Namibian greinir frá þessu. Það er að félagið Esja Investment, í eigu Samherja í gegnum dótturfyrirtækið Esja Fishing, hafi boðist til þess að greiða sjómönnunum 23 bótapakka.

Sjómönnunum var sagt upp fyrirvaralaust árið 2019 og skipt út fyrir ódýrara vinnuafl. Stefndu þeir félaginu ArcticNam, í helmingseigu Samherja, fyrir félagsdóm og unnu það mál þann 24. júní árið 2021. Var ArcticNam gert að greiða þeim samanlagt 15,7 milljónir króna (1,8 milljón namibískra dollara) í bætur.

Samkvæmt dóminum átti að greiða bæturnar fyrir 30. júlí það ár en það hefur ekki gerst.

Krefjast fullra bóta

Í frétt The Namibian kemur ekki fram hversu hátt boð Esju er en það kemur fram að boðinu hafi þegar verið hafnað. Það var gert með bréfi sem lögmaðurinn Norman Tjombe sendi fyrir hönd sjómannana til Esju í gær, 29. nóvember.

„Okkur var falið að staðfesta það að umbjóðendur okkar hafa hafnað boði um að fá aðeins hluta af þeim bótum sem þeir fengu í dóminum. Okkur er falið að sjá til þess að þínir umbjóðendur borgi bæturnar að fullu og vexti upp á 20 prósent á ári hverju ári og eru vextirnir reiknaðir frá uppkvaðningu félagsdómsins (það er 24. júní árið 2021) þar til upphæðin er greidd að fullu,“ segir í bréfi lögmannsins.

Frá uppkvaðningu dómsins hafa liðið um 29 mánuðir. Uppsafnaðir vextir séu því orðnir tæplega 8 milljónir króna (900 þúsund namibískir dollarar).

Sjómennirnir í sárri fátækt

Ítrekaði Tjombe að um sé að ræða fyrirskipun dómsvalds um greiðslu bóta. Hans umbjóðendur beri enga ábyrgð á því að greiðsla bótanna hafa tafist í allan þennan tíma. Ekki verður fallist á að hagga bótaupphæðinni eða vöxtunum. Hún yrði að greiðast innan viku.

„Enn fremur hafa þínir umbjóðendur, fyrirtækið Esja Investment og framkvæmdastjóri, dembt umbjóðendum okkar í sára fátækt með ólöglegum aðgerðum, fyrir utan þær ásakanir um spillingu og mútugreiðslur sem umbjóðendur þínir standa frammi fyrir, sem eru beintengdir örlögum okkar umbjóðenda,“ segir hann í bréfinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Íslendingur fannst látinn á Spáni

Íslendingur fannst látinn á Spáni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður ekki Coda Terminal verkefnið við Vellina – Þyrfti aðkomu minnihlutans til að koma málinu í gegn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill

Gangandi fólk kemst ekki lengur eftir gangstéttum í Norðurmýri – Bílastæðavandinn mikill
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum

Harmleikur í hitabylgju – Gleymdi tveggja ára dóttur sinni úti í bíl með hræðilegum afleiðingum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta

Hlaut lífstíðarfangelsi fyrir ráðabrugg um að nauðga og drepa eina skærustu sjónvarpsstjörnu Breta
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum

Guðmundur Ingi segir verið að hafa almenning að fíflum