Þrifsérfræðingurinn Kate Croukamp, sem hefur starfað við ýmis þrif undanfarin fimmtán ár, segir að hún myndi frekar vilja þrífa skítugt klósett en uppþvottavél.
Hún sýnir af hverju með því að birta mynd af uppþvottavél á heimili skjólstæðings sem hún þreif á dögunum.
„Þú finnur venjulega lyktina um leið og þú opnar uppþvottavélina. Það er vísbending um hvað gæti leynst þarna inni,“ sagði hún.
„En þú veist það ekki fyrr en þú tekur filterinn út og skoðar hann.“
Í þessu tilfelli var ástandið einstaklega slæmt, en það leit út fyrir að það væru að vaxa sveppir og ostrur í filternum.
„Ég hef starfað við þrif í fimmtán ár en ég hef aldrei séð neitt svona,“ sagði hún í myndbandi á TikTok sem hefur vakið gríðarlega athygli.
Eftir að Croukamp var búin að þrífa var filterinn eins og nýr.
Eins og fyrr segir vakti myndbandið mikla athygli og áttu margir erfitt með að skilja hvernig einhver gat leyft þessu að gerast. En þrifsérfræðingurinn sagði að margir hafa ekki hugmynd um að það sé filter á uppþvottavélum sem þarf að þrífa.
„Það er auðvelt að dæma aðra á netinu, en mörgum var aldrei kennt að þrífa,“ segir hún og bætir við að það séu ýmsar ástæður fyrir því að fólk missi tökin á heimilinu, eins og andleg veikindi eða áföll.