The Washington Post segir að fulltrúar Rússa og Kínverja hafi á laun rætt um að gera neðansjávargöng til að tengja rússneska meginlandið við Krímskaga sem er á valdi Rússa. Fulltrúar ríkjanna funduðu um málið í október en ástæðan fyrir þessum viðræðum eru áhyggjur Rússa af öryggi brúarinnar sem þeir gerðu yfir Kerch sundið. Úkraínski herinn hefur tvisvar ráðist á brúna og valdið miklum skemmdum.
Brúin er mjög mikilvæg fyrir birgðaflutninga Rússa til hersveitanna sem berjast í Úkraínu sem og til Krímskaga. Með því að gera neðansjávargöng gætu þeir verið vissir um að Úkraínumenn gætu ekki gert árásir á þau og þar með truflað birgðaflutninga þeirra.
Gerð neðansjávarganga mun kosta sem nemur mörg hundruð milljörðum íslenskra króna og það myndi ekki gera gerð þeirra auðveldari að stríð geisar í Úkraínu.