fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fréttir

Ný rannsókn sýnir slæm langtímaáhrif af notkun ADHD lyfja – Hætta á hjarta og æðasjúkdómum

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. nóvember 2023 22:30

ADHD lyf eru mjög útbreidd á Íslandi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi hafa komist að því að langtímanotkun á ADHD lyfjum getur aukið líkurnar á hjarta og æðasjúkdómum. Þetta kemur fram tveimur nýjum rannsóknum, sem birtar voru í tímaritunum The Lancet Psychiatry og JAMA Psychiatry.

Vísindamennirnir rannsökuðu lyfjaávísanir 1,2 milljón sjúklinga í Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu, Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Hollandi, Hong Kong og Íslandi. Það mynstur sem þeir sáu var eins í öllum löndum. Fólk sem hafði notað ADHD lyf í langan tíma og í hærri en meðal skömmtum var líklegra til að fá suma hjarta og æðasjúkdóma.

Þetta eru einkum fólk sem hefur tekið ADHD lyf í allt að 14 ár. Sjúkdómarnir eru hár blóðþrýstingur og slagæðasjúkdómar. Samkvæmt rannsókninni aukast líkurnar á þessum sjúkdómum um 4 prósent á hverju ári. Þetta á við sjúklinga sem nota skammta sem eru að minnsta kosti 50 prósentum yfir meðaltali.

Helmingur hættir á innan við ári

Einnig kom fram að meira en helmingur unglinga og fullorðinna sem hafði fengið ADHD lyf hætti að taka lyfin á innan við einu ári. Einnig um 35 prósent barna, það er í öllum löndum fyrir utan Danmörku þar sem hlutfallið var mun lægra.

„Það er ólíklegt að svo margir hafi hætt sinni lyfjameðferð vegna þess að ADHD einkennin hafi rénað, sem þýðir að þetta háa hlutfall gæti verið merki um hindrun við eðlilega meðferð. Okkur hefur ekki tekist að sjá hvað veldur þessu en oft er ástæðan fyrir því að fólk hættir lyfjatöku sú að þau virki illa eða hafi aukaverkanir,“ segir Zheng Chang, faraldsfræðingur við Karólínska sjúkrahúsið, sem leiddi báðar rannsóknirnar við heilbrigðisvefinn News Medical.

Flestir hætta 18 og 19 ára

Flestir hætta lyfjatöku 18 eða 19 ára. Að sögn vísindamannana er hætta á að fólk falli á milli kerfa á þessum árum, þegar fólk hættir að vera skilgreint sem börn samkvæmt lögum.

„Við þurfum að bæta tilfærslu barna yfir í fullorðins geðlækningar og dreifa þekkingu um þau vandamál tengd ADHD sem eru oft viðvarandi í langan tíma,“ segir vísindamaðurinn Isabell Brikell sem einnig kom að rannsókninni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kringlan komin á fulla ferð á ný

Kringlan komin á fulla ferð á ný
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007
Fréttir
Í gær

Alexandra lætur Sigmund Davíð fá það óþvegið: „Er maðurinn fimm ára?“

Alexandra lætur Sigmund Davíð fá það óþvegið: „Er maðurinn fimm ára?“
Fréttir
Í gær

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“
Fréttir
Í gær

„Háir stýrivextir eru nefnilega bara mjög fín kjarabót fyrir þau sem eiga peninga“

„Háir stýrivextir eru nefnilega bara mjög fín kjarabót fyrir þau sem eiga peninga“
Fréttir
Í gær

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“