fbpx
Laugardagur 15.mars 2025
Fréttir

„Hundrað fjölskyldur sem nú standa í þeim sporum að óvissan nagar, framtíðin er með öllu óviss“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 29. nóvember 2023 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Á meðan viðskiptabankarnir þrír hafa nú sýnt sóma sinn og samkennd með því að fella niður vexti og verðbætur á lánum þeirra sem fyrir hörmungunum verða bera nú lífeyrissjóðir fyrir sig lögformlegum atriðum sem, samkvæmt þeim, koma algerlega í veg fyrir að hægt sé að hnika til reglum og lögum þeirra svo koma megi lántökum þeirra til aðstoðar á ögurstundu. Höfundur spyr: Hvaða kjaftæði er þetta ?“ spyr Sigríður María Eyþórsdóttir, kirkjuvörður Grindavíkurkirkju, tónlistarmaður og Grindvíkingur, í skoðunarpistli á Vísi, sem vakið hefur mikla athygli.

Tekur Sigríður þar fyrir þá staðreynd að lífeyrissjóðir landsins hafa enn ekki, þrátt fyrir margar fyrirspurnir grindvískra lántakenda, tekið neina afstöðu til þess hvernig eiga að taka tillit til aðstæðna þeirra næstu mánuði hvað greiðslur af lánum þeirra varðar.

„Klukkan tifar, það styttist í mánaðarmót. Þegar þessi orð eru skrifuð eru tæplega fjögur þúsund sálir frá kyrrlátu þorpi á suðvesturhorni lítils lands í norður Atlantshafi tvístraðar um eyjuna, margar á vergangi, húsnæðislausar og óttaslegnar með lítið í farteskinu annað en helstu nauðsynjar, kvíða og brostna framtíðardrauma. En það er þó bót í máli, eða hvað, að þessi eyja er með ríkustu landsvæðum veraldar. Hagsældin er í stóra samhenginu stórkostleg, og hún er að þakka einmitt þessu fólki og öðrum eins og þeim sem byggja þetta fámenna og harðbýla sker og vinna sig inn að beini til að tryggja sér og sínum öryggi og þolanlega tilvist á hjara veraldar. Því skyldi maður ætla að okkur væri borgið. En nei. Jafnvel í hörmungum eins og þeim sem yfir litla sjávarþorpið hafa dunið skýtur fégræðgin upp sínum ljóta kolli og á meðan brotið samfélagið hrópar á réttlæti og sanngirni, uppfullt af reiði og frústrasjónum sitja nú lífeyrissjóðirnir sílspikaðir og glottandi á fjósbitanum,“ segir Sigríður María. 

Segir að breyta eigi sem eru meingölluð

Spyr hún hvers konar hundalógik það er að ekki megi frysta lán og fella niður vexti og verðbætur til fólksins „sem þó hefur borgað skilmerkilega í sjóði um árabil og staðið við skuldbindingar sínar til þeirra ? Hvernig má það vera að almenn skynsemi, manngildi og nauðsyn þurfi að lúta í lægra haldi fyrir ákvörðunum og reglum sem klárlega voru ekki samin á hamfaratímum? Ef lögin eru svona meingölluð- breytið þeim! Þau eru ekki rituð í steintöflur frá Sínaifjalli.“

Sigríður María segir að við eftirgrennslan sína hafi komið í ljós að Lífeyrissjóðurinn Gildi er kröfuhafi að rúmlega helmingi húsnæðislána í Grindavík, eða um 50 af um það bil 100 lánum. „Að baki þessara lána standa hundrað heimili, hundrað fjölskyldur sem nú standa í þeim sporum að óvissan nagar, framtíðin er með öllu óviss, nema hvað að við vitum öll eitt; lífið verður aldrei eins og áður. Það er sárt. Enn sárara er þó að átta sig á því að það sem við krefjumst frá lífeyrissjóðunum okkar núna, sjóðum sem sannarlega eru til þess ætlaðir að tryggja afkomu og lífsviðurværi sjóðsfélaga myndi kosta þá aðeins 60-70 milljónir í framkvæmd. Þú last rétt kæri lesandi; að frysta lánin og að fella niður vexti og verðbætur þessara hundrað heimila í þrjá mánuði kostar minna en eitt þokkalegt einbýlishús á svæðinu… fyrir jarðhræringar að vísu.“

Vill almenningur lífeyrissjóði sem þessa?

Sigríður María skorar á verkalýðshreyfinguna að efna enn á ný til mótmæla og segir nokkuð marga hafa eitthvað að segja um málin eins og þau eru í dag.

„Þetta kemur ekki bara Grindvíkingum við, heldur okkur öllum sem höfum greitt í lífeyrissjóði. Við samþykkjum þetta ekki,“ segir Sigríður María.

„Svo ég tali íslensku bara : Nú velti ég fyrir mér hvort lífeyrissjóðir í því formi sem þeir hafa fengið að vaða uppi undanfarna áratugi séu í raun það sem við viljum sem þjóð, sem almenningur. Er pláss í okkar samfélagi fyrir þessi bákn sem byggð voru undir þeim formerkjum að vera okkar lífsafkomutrygging og öryggisnet og en reka svo niður hælana og þráast við eins og um þeirra persónulegu bankainnistæður væri að ræða þegar til kasta kemur, en sólunda okkar lífeyrisfé eftir eigin geðþótta með misgáfulegum hætti utan þess og hlutur lífeyrisþega skertur með þeim hætti?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

„Hvað ætlum við að gera öðruvísi núna svo við höldum ekki áfram að framleiða hættulega afbrotamenn á færibandi?“

„Hvað ætlum við að gera öðruvísi núna svo við höldum ekki áfram að framleiða hættulega afbrotamenn á færibandi?“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“