fbpx
Föstudagur 22.nóvember 2024
Fréttir

Katrín tekur ekki undir að allar eignir í Grindavík séu verðlausar – Langt í að Grindvíkingar komist heim

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 28. nóvember 2023 22:00

Margar spurningar brenna á Grindvíkingum varðandi framtíðina. Mynd/Skjáskot RÚV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarstjóri Grindavíkur býst við að þurfa að vera lengi að heiman. Forsætisráðherra segir það bratt að halda því fram að allar húseignir í Grindavík séu verðlausar og óseljanlegar.

Þetta er meðal þess sem kom fram í sjónvarpsþættinum Torgið á RÚV þar sem fjallað var um stöðuna í Grindavík og framtíð íbúanna.

Til svara voru meðal annars Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Fannar Jónasson, bæjarstjóri, og Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra. Spurningar komu að stórum hluta frá íbúum Grindavíkur.

Væri áfall að rýma aftur í vetur

„Ég held að við verðum að búast við því að vera lengi að heiman,“ sagði Fannar aðspurður um hvenær hann byggist við því að Grindvíkingar gætu snúið aftur heim.

Tvær stórar ástæður væru fyrir því. Annars vegar að það sé enn þá hreyfing í jörðinni og nýjar sprungur að myndast. Hins vegar að innviðirnir, einkum lagnakerfið, þurfi að geta tekið við íbúunum. Hingað til virðist sem svo að kerfið hafi staðist atlöguna að mestu en það þarf að gera framkvæmdir og best sé að gera þær á vorin. Nú sé harðasti vetrarkaflinn að koma.

„Það væri mikið áfall að þurfa að rýma aftur um miðjan vetur,“ sagði Fannar og hvatti fólk til að sýna biðlund. Ekki væri forsvaranlegt að tala um að flytja aftur heim fyrir jól. Býst hann við að grindvísk börn klári skólaárið í nýjum skólum.

Enn þá landris og kvikuinnstreymi

Víðir Reynisson tók í sama streng. Enginn gæti svarað því hvenær Grindvíkingar gætu flutt aftur heim. Enn þá sé landris í Svartsengi og enn þá sé kvikuinnstreymi í kvikuganginn, þó það sé reyndar norðar en áður.

„Þessi jarðfræðilegi atburður er alls ekki búinn,“ sagði Víðir. Hann sagði að fólk mætti búast við jarðskjálftum á næstu tveimur vikum vegna þeirrar þenslu sem enn þá er í gangi. Enn þá séu svæði í Grindavík sem séu mjög hættuleg.

Sjá einnig:

Sjáðu skemmdirnar í Grindavík

Víðir segir að bíða þurfi eftir því að landris hætti. „Þá getum við farið að telja einhverja daga þangað til hægt verður að flytja heim jarðfræðinnar vegna,“ sagði hann.

Þá er lagnakerfið stór spurning, einkum skólpkerfið, þar sem bærinn hefur sums staðar sigið á vel á annan metra. Skemmdir séu miklar í sigdalnum. „Mesta brotið og mestu sýnilegu ummerkin eru á jöðrunum. En við erum farin að fá tilkynningar um skemmdir á húsum inn í sigdalnum sjálfum,“ sagði Víðir.

Ekki allar eignir verðlausar

Eðlilega brunnu húsnæðismálin heitast á Grindvíkingum. Hvernig og hvort tjónið yrði bætt og hvort fólk sæti uppi með ill eða óseljanleg hús.

Katrín sagði bratt að segja að allar eignir í Grindavík séu verðlausar. „Það er víða á Íslandi sem er náttúruvá,“ sagði hún. Það að Ísland væri jarðfræðilega virkt land gæfi okkur ýmis þægindi en einnig náttúruvá. Byggja þyrfti allar ákvarðanir á rannsóknum og gögnum til að taka bestu mögulegar ákvarðanir. Sumir væru með verulega skemmd hús en aðrir algjörlega óskemmd.

Brunabótamat hámark bóta

Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands, var einnig til svara. Sagði hún að áherslan núna væri að skoða mest skemmdu húsin. Ekki væri útilokað að önnur hús yrðu skoðuð þegar færi að róast. Ekki væri fráleitt fyrir fólk að óska eftir skoðun.

Hulda sagði fólk hafa rúman tímafrest til að tilkynna tjón, það er heilt ár. Þá eru tveir aðrir fyrningarfrestir í einstökum tilvikum, 4 ár og 10 ár.

Aðspurð sagði hún Náttúruhamfaratryggingu ekki hafa heimildir til þess að bæta tjón umfram skemmdir á eign. Bæturnar endurspegla kostnað við viðgerðir. Brunabótamat er verð eignarinnar og hámark bóta við altjón.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni á árunum 2003 til 2007
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán

Vilhjálmur bendir á hvað vaxtahækkun Íslandsbanka þýðir fyrir 45 milljóna króna lán
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“

Sigurður Ingi skýtur hugmynd Miðflokksins í kaf: „Já, þetta er vitlaus hugmynd“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund

Gosið fór yfir Grindavíkurveg í nótt – Fer 300 metra á klukkustund
Fréttir
Í gær

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots

Ákærð fyrir stórfellda líkamsárás á starfsmann Vinakots
Fréttir
Í gær

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“
Fréttir
Í gær

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“

Nýju gögnin í Geirfinnsmálinu eiga að fara til Keflavíkur – „Þarna var sáð fræi sem varð að mesta réttarmorði Íslandssögunnar“
Fréttir
Í gær

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt

Enn fækkar í Þjóðkirkjunni og fjölgar í Siðmennt