fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Eyjan

Þetta ætla yfirvöld að gera fyrir Grindvíkinga

Eyjan
Föstudaginn 24. nóvember 2023 11:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á ríkisstjórnarfundi í dag stuðningsaðgerðir til að mæta húsnæðisþörfum Grindvíkinga vegna jarðhræringa á svæðinu.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að aðgerðirnar feli annars vegar í sér tímabundinn fjárhagslegan stuðning vegna aukins húsnæðiskostnaðar og hins vegar verði sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur.

Sértækur fjárhagslegur stuðningur

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra mun í næstu viku leggja fram frumvarp á Alþingi um sértækan húsnæðisstuðning til að koma til móts við aukinn kostnað þeirra sem þurfa að leigja sér húsnæði utan Grindavíkur vegna jarðhræringanna. Stuðningurinn verður tímabundinn til þriggja mánaða og endurskoðaður fyrir lok þess tímabils með tilliti til þarfar á áframhaldandi stuðningi. Veittur verður mánaðarlegur húsnæðisstuðningur sem fer stighækkandi eftir fjölda heimilisfólks gegn framvísun skráðs leigusamnings.

Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við slíkt stuðningskerfi geti numið um 220 til 240 milljónum króna á mánuði, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

Kaup á íbúðarhúshæði í þágu Grindvíkinga

Bent er á það að alls hafi um 3.700 íbúar verið skráðir með lögheimili í Grindavík áður en þær jarðhræringar sem nú standa yfir hófust. Miðað við þær umsóknir sem borist hafa um skammtímahúsnæði er talið að um 700 einstaklingar eða um 200 fjölskyldur þurfi á húsnæði að halda fyrir áramót eins og er. Flest þeirra hafa óskað eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu eða Suðurnesjum.

„Til að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur m.a. verið leitað til Bríetar leigufélags, sem er að fullu í eigu ríkisins, um að kaupa allt að 150 nýjar íbúðir á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, til leigu fyrir Grindvíkinga. Leitað verður hagstæðustu tilboða í eignirnar sem fjármagnaðar verða af Húsnæðissjóði. Þá mun Bjarg íbúðafélag koma að því að mæta sérstaklega húsnæðisþörf tekjulægri heimila í Grindavík með mögulegum kaupum á allt að 60 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði til afhendingar á næstu vikum,“ segir á vef Stjórnarráðsins.

Samtals verði því unnt í samstarfi við Grindavíkurbæ að ráðstafa allt að 210 nýjum íbúðum innan skamms til Grindvíkinga til að leysa brýna húsnæðisþörf.

„Grundvöllur verkefnisins er að samningar náist við verktaka um kaup á tilbúnum íbúðum á hagstæðu verði og ráðist verði í það í skrefum samhliða stöðugu mati á húsnæðisþörf. Litið er á verkefnið sem tímabundið á meðan óvissu gætir um framhald mála vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Sérstök viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðherrabústaðnum í dag við leigufélögin Bríeti og Bjarg um kaup á ofangreindum íbúðum.“

Starfshópur um húsnæðiseiningar

Þá kemur fram að sérstakur starfshópur hafi einnig verið settur á laggirnar til að kanna fýsileika á kaupum á tilbúnum, hagstæðum og færanlegum húsnæðiseiningum sem hægt væri að fá afhentar með tiltölulega stuttum fyrirvara. Sá hópur hefur einnig það hlutverk að kanna möguleg landsvæði, einkum á Reykjanesi eða á höfuðborgarsvæðinu, með þessa útfærslu í huga þar sem fyrir eru ákveðnir innviðir sem nauðsynlegir eru. Reynt verður að hraða vinnu starfshópsins eins og kostur er.   Með slíkri lausn væri hægt að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga til lengri tíma, og mæta jafnframt annarri brýnni þörf fyrir hentugu húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”

„Óþekkt og almennt slugs orðið hluti af mannréttindum barna”
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk

Arnar Þór íhugar að stofna nýjan stjórnmálaflokk
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór

Óttar Guðmundsson skrifar: Ný-mjór
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur

Lindarhvoll: Milljónir í stjórnarlaun en engir stjórnarfundir – óheyrilegur lögfræðikostnaður en engar tímaskýrslur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski

Svarthöfði skrifar: Mjúk lending að hætti AGS – vaxtalækkun eftir ár, kannski
Eyjan
Fyrir 1 viku

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“

Borgin heldur áformum um flugvöll í Hvassahrauni til streitu og Njáll Trausti furðu lostinn – „Enginn pólitíkus á íslandi er að fara að skrifa upp á það“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir

Jón Sigurður skrifar – Farsælast að vera fullkomlega sannfærður um eigin ranghugmyndir
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu

Sigmundur Ernir skrifar: Einstaklingshyggjan hefur rænt okkur vitinu