Guðmundur Þ. Guðmundsson fyrrum þjálfari íslenska handboltalandsliðsins segir nýjan samning HSÍ við Arnarlax vera hneyksli.
Guðmundur sem var látinn taka poka sinn sem landsliðsþjálfari í upphafi árs segir að hann hefði aldrei samþykkt að taka þátt í þessu sem þjálfari liðsins.
„Þessi samningur milli HSÍ og Arnarlax er regin hneyksli og sýnir stórkostlegan dómgreindarskort af hálfu formanns HSÍ, Guðmundar B. Ólafssonar,“ segir Guðmundur í færslu sinni á Facebook í dag.
HSÍ og Arnarlax hafa undirritað samkomulag þess efnis að Arnarlax verði einn af bakhjörlum HSÍ. Frá og með HM kvenna sem hefst í næstu viku í Noregi, Svíþjóð og Danmörku mun Arnarlax hafa sitt vörumerki á baki allra keppnistreyja landsliða Íslands í handbolta. Var samstarfið kynnt í dag.
Guðmundur ritar um það sem gerst hefur hjá fyrirtækinu sem HSÍ fer nú í samstarf við. „Arnarlax var meðal annars fyrir nokkru síðan sektað af Matvælastofnun að upphæð 120 milljón króna fyrir að hafa brotið gegn skyldu um að tilkynna um strok á fiski og beita sér fyrir veiðum á strokfiski. Arnarlax sýndi þar fullkomið og vítavert aðgæsluleysi til skaða fyrir íslenska náttúru. “
Arnarlax er meðal annars með sjókvíaeldi sem Guðmundur fer ekki fögrum orðum um. „Þetta sjókvíaeldi er hörmulegur og mengandi iðnaður sem mun ganga af íslenskum náttúrulegum laxastofni dauðum.“
Hann segir að hann hefði aldrei tekið þátt í þessu. „Að þiggja peninga frá þessu fyrirtæki sem vill nýta sér íslenska landslið til að lappa upp á dapurlega ímynd sína er óskiljanlegt. Eitt get ég sagt að ég hefði aldrei samþykkt sem þjálfari landsliðsins á sínum tíma að bera slíka auglýsingu.“