„Ég vara alla við! Einhver á netinu er að reyna að svindla á fólki undir mínu nafni og með með mynd af mér. Fólk sem orðið hefur fyrir þessu hefur látið mig vita og sent mér myndir sem líta svona út. Í guðanna bænum látið ekki blekkjast,“ sagði Guðjón á Facebook-síðu sinni.
Mikið hefur borið á allskonar svindlum að undanförnu og hafa meðal annars lögreglan og CERT-IS, sem hefur með net- og upplýsingaöryggi þjóðarinnar að gera, varað við þeim.
Guðjón birti skjáskot af aðferðafræði gervimannsins en eins og það sýnir virðist ekki vera um mjög fágað svindl að ræða.
Reynir hann að kynna fyrir viðkomandi einhverskonar forrit sem á að hjálpa fólki að greiða reikninga. Segist gervimaðurinn til dæmis hafa fengið 500 þúsund króna gjöf fyrir að skrá sig.
Í þessu svindli og fleiri sambærilegum netsvindlum sannast það sem CERT-IS hefur reglulega minnt á í fréttatilkynningum sínum í gegnum tíðina: „Ef eitthvað er of gott til að vera satt, er það yfirleitt þannig.“