fbpx
Mánudagur 08.júlí 2024
Pressan

IKEA tífaldar verðið á föstudaginn

Pressan
Þriðjudaginn 21. nóvember 2023 04:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er varla hægt að opna netmiðil, hlusta á útvarpið eða glugga í blað þessa vikuna án þess að sjá auglýsingar um svartan föstudag og ótrúleg tilboð á ýmsum vörum af því tilefni, að minnsta kosti að mati auglýsenda.

En IKEA í Danmörku hefur ákveðið að synda á móti straumnum og boðar að verð á ákveðnum vörutegundum tífaldist á föstudaginn, á svörtum föstudegi.

Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að sú mýta sé seiglíf að klassísk hönnun kosti mikið en það sé synd að þessi mýta sé við lýði, því það fjarri því að þetta sé alltaf rétt. Af þeim sökum hækki fyrirtækið verðið á sumum vörum á svörtum föstudegi til að kveikja umræðu um hvort gæðavörur séu alltaf dýrar.

IKEA segir að markmiðið með þessu sé að stríða viðskiptavinum og fá fólk til að skilja að gæðavörur þurfi ekki nauðsynlega að kosta mikið.

Verðið verður síðan lækkað aftur og verður komið í eðlilegt horf á laugardaginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Það er eins og við höfum opnað hlaðborð“

„Það er eins og við höfum opnað hlaðborð“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Merkur fornleifafundur í hlíð einni

Merkur fornleifafundur í hlíð einni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kórónuveiran í sókn – Ný sjúkdómseinkenni fylgja nýjum afbrigðum

Kórónuveiran í sókn – Ný sjúkdómseinkenni fylgja nýjum afbrigðum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hann knúði dyra að kvöldi til – Í síðustu viku lauk málinu endanlega

Hann knúði dyra að kvöldi til – Í síðustu viku lauk málinu endanlega
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eyðslusöm forsætisráðherrafrú – Keypti töskur og skartgripi fyrir 50 milljarða

Eyðslusöm forsætisráðherrafrú – Keypti töskur og skartgripi fyrir 50 milljarða
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tengist stolið Rolex-úr hvarfi unga mannsins á Tenerife?

Tengist stolið Rolex-úr hvarfi unga mannsins á Tenerife?