Hluti af hagnaði af endursölu fatnaðar rennur til Samtaka íslensku kristniboðafélaganna. Um er að ræða tiltekna skó sem safnað er á endurvinnslustöðinni í Sævarhöfða.
Umræða hefur spunnist um málið á samfélagsmiðlum og sitt sýnist hverjum. Sumum hugnast það alls ekki að styðja við kristniboð heldur vilja að ágóðinn renni til góðgerðarmála.
Kristniboðssambandið (SÍK) var stofnað árið 1929 og hefur stutt við kristniboða í Asíu og Afríku. Meðal annars með því að styðja við útvarps og sjónvarpsútsendingar á kristilegu efni og fjármagna kirkjubyggingar.
„Boðun og kærleiksþjónusta fara alltaf saman og hvorugt getur án hins verið,“ segir á heimasíðu SÍK.
„Það hefur eitthvað í snefilmagni verið safnað fyrir þessi tilteknu samtök á endurvinnslustöðinni á Sævarhöfða,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, samskipta og þróunarstjóri Sorpu.
Gunnar segir að allt sem komi til Góða hirðisins fari inn í þann rekstur og allt sem fari í fatagáma hjá Rauða krossinum fari í fataverkefni hjá þeim. Aðeins ágóði af skóm sem fari í tiltekna gáma á Sævarhöfða fari til SÍK.
Hann segir einnig að það standi til að endurskoða þetta fyrirkomulag.
„Þetta er gamalt samstarfsverkefni. Við erum í því ferli núna, bæði gagnvart Rauða krossinum og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, að endurskoða textílmálefnin í heild,“ segir Gunnar.
Ruth Einarsdóttir, verslunarstjóri Góða hirðisins, segir að verslunin styrki ekki trúboðastarf. Aðeins góðgerðastarf.
„Allt sem berst í okkar nytjagáma reynum við að koma í endurnot. Ef hagnaður er af rekstri þá er hann gefin til góðgerðamála hér á Íslandi. Styrkurinn renni til „Hjálpar fólki til sjálfsbjargar“ svo sem menntunar, endurhæfingar og sjálfsbjargar. Leitast er við að styrkja efnaminni börn og ungmenni,“ segir Ruth.
Meðal annars hefur Góði hirðirinn styrkt Sorgarmiðstöð, Áfallasjóð Rauða krossins, Hjálpræðisherinn, Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarf kirkjunnar og Fjölskylduhjálp Íslands.