fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fréttir

Þitt nafn bjargar lífi – Fréttatilkynning frá Íslandsdeild Amnesty International

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 16. nóvember 2023 12:43

Julia Mai Linnéa Maria fyrir framan vegglistaverk sitt um pólska kvenréttindafrömuðinn Justynu Wydrzyńska

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirfarandi er fréttatilkynning frá Íslandsdeild Amnesty International:

Þitt nafn bjargar lífi – Hafðu áhrif núna!  

Krafan um verndun mannréttinda hefur sjaldan verið jafn þörf og núna. Stríðið í Úkraínu og harðnandi átök fyrir botni Miðjarðarhafs hafa kostað gífurlegan fjölda mannslífa, einkum óbreyttra borgara. Þar á meðal eru fjölmörg börn. Stríðsglæpir hafa verið framdir bæði af hálfu og Hamas og ísraelskra stjórnvalda. Alvarleg brot á alþjóðalögum og fordæmalaus mannúðarneyð á Gaza, knýr mörg okkar til að vilja grípa til aðgerða í þágu mannúðar, mannréttinda og mannlegrar reisnar. Okkur finnst við eflaust vanmáttug frammi fyrir jafn skelfilegum fréttum um mannréttindabrot en við megum ekki láta hugfallast. Við getum kannski ekki gert allt en við getum öll lagt eitthvað af mörkum til að gera heiminn örlítið betri. Þegar við tökum höndum saman sem hreyfing þá getum við fært fjöll.   

Mannréttindabaráttan virkar!  

Hin árlega og alþjóðlega herferð, Þitt nafn bjargar lífi, hefst í dag. Hægt er að skrifa undir tíu mál þolenda mannréttindabrota á www.amnesty.is.  

Herferðin hefur svo sannarlega sýnt að venjulegt fólk getur umbreytt lífi þolenda mannréttindabrota með þeim einfalda hætti að setja nafn sitt á bréf til stjórnvalda og krefjast umbóta. Allt frá upphafi herferðarinnar árið 2001 hafa rúmlega hundrað þolendur grófra mannréttindabrota fengið úrbætur á sínum málum. Undirskriftir til stjórnvalda sem fótum troða mannréttindi hafa því oft skipt sköpum í lífi þolenda og gefið öðrum von á erfiðum tímum, sem er ekki síður mikilvægt.   

Mér er svo létt og ég þakka ykkur fyrir stórkostlega herferð. Ég stend í ævarandi þakkarskuld við ykkur. Það er sem þungri byrði hafi verið létt af herðum mér. Mér leið eins og ég væri svo elskuð og mikils metin þegar ég las öll bréfin og kortin.“   

Þannig hljóma þakkarorð Cecilliu Chimbiri frá Simbabve. Fólk um heim allan létu sig mál hennar og vinkvennanna, Joanah Mamombe og Netsai Marova, varða á síðasta ári í herferðinni Þitt nafn bjargar lífi og kölluðu eftir því að ákærur á hendur þeim yrðu felldar niður. Cecillia og Joanah voru sýknaðar í júlí sl. en mál Netsai fór ekki fyrir dómstóla þar sem hún flúði land.   

Þetta er aðeins eitt dæmi af mýmörgum um þann góða árangur sem náðst hefur í herferðinni.   

Samtakamáttur til sigurs  

Samtakamátturinn skiptir máli. Fólk á Íslandi hefur heldur betur lagt sitt lóð á vogarskálarnar með góðri þátttöku í herferðinni. Um er að ræða stærstu mannréttindaherferð í heimi og fer hún fram á aðventunni ár hvert í rúmlega 200 löndum og landsvæðum. Íslandsdeild Amnesty International er afar þakklát öllum þeim fjölmörgu Íslendingum sem lagt hafa herferðinni lið síðustu ár. Þátttakan hefur skipt sköpum enda grípa nærri 3% Íslendinga til aðgerða á hverju ári. Það er mun hærra hlutfall íbúa en nokkur staðar í heiminum.  

Íslandsdeild Amnesty International hefur í gegnum árin vakið athygli á herferðinni með ýmsum hætti. Undanfarin ár hefur Íslandsdeildin fengið til liðs við sig listafólk til að gera vegglistaverk af einu máli þolanda á útivegg á kaffihúsinu Kaffi Vest. Í ár er engin undantekning þar á og hefur listakonan Julia Mai Linnéa Maria gert glæsilegt listaverk af pólska kvenréttindafrömuðinum Justynu Wydrzyńska sem berst fyrir réttinum til öruggs þungunarrofs í heimalandi sínu. 

Mál Justynu hafði mikil áhrif á mig og mig langar að vinna meira með list sem felur jafnframt í sér mikilvæg skilaboð,“ segir Julia Mai Linnéa Maria um ástæðu þess að hún tók að sér þetta verkefni.  

Gerum herferðina, Þitt nafn bjargar lífi, árið 2023 enn áhrifameiri í þágu einstaklinga í tíu málum sem eiga það flestir sameiginlegt að hafa glatað frelsi sínu með einum eða öðrum hætti.  

Við hvetjum fólk til að styðja við málin með undirskrift sinni. Það tekur aðeins örskamma stund að skrifa undir á www.amnesty.is.  

Í krafti fjöldans náum við árangri. Þitt nafn getur haft áhrif til góðs. Þitt nafn getur bjargað lífi. Skrifaðu undir núna!  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi

Stóra fíkniefnamálið: Skuldaði höfuðpaurnum tíu milljónir og fór í örlagaríka ferð með skemmtiferðaskipi
Fréttir
Í gær

Raðmorðingi játar á sig morð 42 kvenna á tveimur árum

Raðmorðingi játar á sig morð 42 kvenna á tveimur árum
Fréttir
Í gær

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti

Vísaði frá máli gegn Donald Trump varðandi stuld á leynilegum skjölum – Skipaði sjálfur dómarann í embætti
Fréttir
Í gær

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi

Dómarinn rifjaði upp langan brotaferil Kourani – Hefur aldrei stundað vinnu á Íslandi
Fréttir
Í gær

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“

Auglýsingin fræga á Laugaveginum að hverfa – „Hræðilegt það er verið að byrja að mála yfir þetta“
Fréttir
Í gær

Hafa borið kennsl á líkin í ferðatöskunum – 34 ára gamall maður ákærður fyrir ódæðið

Hafa borið kennsl á líkin í ferðatöskunum – 34 ára gamall maður ákærður fyrir ódæðið
Fréttir
Í gær

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“

Trump í fyrsta viðtalinu eftir árásina – „Ég á að vera dauður“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “

„Það er siðferðislega óásættanlegt að þessu tjóni verði eingöngu velt yfir á íbúa í Vestmannaeyjum “
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði

Íslendingur dæmdur í þriggja mánaða fangelsi í Danmörku fyrir að kýla unnustu sína margsinnis á bílastæði