Skjálftavirkni á umbrotasvæðinu á Reykjanesi hefur verið stöðug síðan 11. nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni sem birt var kl. 11:40.
Um 900 skjálftar hafa mælst frá miðnætti í dag. Skjálftavirknin er dreifð um suðurhluta gangsins á milli Sundhnúks og Grindavíkur og er á um 2-5 km dýpi.
Enn mælist hæg minnkandi aflögun við Grindavík. Gliðnun er mest við miðju gangsins við Sundhnúk þar sem megin uppstreymissvæði kviku er talið vera.
Í tilkynningunni segir ennfremur:
„Það er mat Veðurstofunnar að virknin í og við Grindavík sé nánast óbreytt frá því í gær. Fylgst er gaumgæfilega með öllum mælakerfum í rauntíma, sér í lagi við Grindavík, sem gætu bent til breytinga á stöðunni.
Vakt Veðurstofunnar einbeitir sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og sinnir sérstakri vöktun viðbragðsaðila á staðnum sem sinna aðgerðum á staðnum.“