fbpx
Föstudagur 19.júlí 2024
Fókus

„Smartland slaufaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum“

Fókus
Mánudaginn 13. nóvember 2023 11:29

Þeir fóru um víðan völl í þættinum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aðsend grein frá Alkastinu:

Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsundþjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti.

Þátturinn er ekki beint viðtalsþáttur heldur meira spjall þriggja miðaldra manna sem allir eiga það sameiginlegt að sinna skyldum sem feður og eiginmenn í hröðu samfélagi en virðast eiga það sameiginlegt að vera þrátt fyrir aldurinn á margan hátt ennþá bara litlir strákar að velta steinum í leit að svörum.

Í byrjun viðtals fóru strákarnir yfir gagnsemi kannabínóða og nefndu í því samhengi þessa helstu eins og CBD, THC, CBG og CBN. Í því samhengi útskýrði Gunnar ECS kerfið sem kallast á ensku Endocannabinoid System, skammstafast sem ECS. Á íslensku myndi það þýðast sem Endokannabínóðakerfið og því skammstafast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkjakerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum, sem hafa stjórn á ýmissi starfsemi í mannslíkamanum. Ber að nefna í þessu samhengi hjálp við svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgumyndun, húðvandamál, endurheimt og frjósemi. Þessar flóknu tengingar finnast í heilanum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líffærum okkar.

Breyttu lífi hans

Kerfið var uppgötvað af tékkneskum vísindamanni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísindamenn að því að líkaminn framleiðir sína eigin kannabínóða í margvíslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti.

Gunnar talaði um hvernig kannabínóðar og smáskömmtun á sveppum höfðu í raun breytt lífi hans til hins betra. Kannabínóðarnir vinna á bólgum í líkamanum og auka svefngæði á meðan sveppurinn víkkar hugann og gerir að hans sögn huginn víðan.

„Vesen og vandamál verða að spennandi verkefnum þar sem lausnin ávallt dúkkar upp.“

Skortur á karlmennsku

Málefnin sem rædd voru í þættinum voru fjölbreytt. Swingmenningin var rædd fram og til baka og allir voru þeir sammála um að swingið gæti verið spennandi möguleiki með mikla möguleika.

Gunnar spurði Davíð út í hvernig hann myndi skilgreina heilbrigða karlmennsku og ítrekaði nauðsyn þess á tímum þar sem orðið eitt og sér virðist fela í sér neikvæða orku. Allir voru þeir sammála um að karlmennskan geti í raun aldrei verið eitruð því sönn karlmennska er hrein, heiðarleg og full af samkennd. Hins vegar þegar vísað er í ástand mannsins sem eitruð karlmennska vildi Gunnar meina að vissa missögn og rangtúlkun væri um að ræða og því hentugra orðaval væri þá frekar skortur af karlmennsku í stað eitraðar.

Þriðja vaktin var rædd í þaula og voru þeir sammála um að hún væri ekki við lýði heima hjá þeim enda allir þrír miklir atorkumenn og kampduglegir á flestum sviðum heimilis og fjölskyldulífsins. Gunnar vildi meina að orðagjálfrið sem oft á tíðum kæmi úr akademískri kynjafræði væri torskilið fyrir hinn hefðbundna karlmann og því skapaðist oft á tíðum mótþrói sem getur litið út fyrir að vera karlrembingur, en er í raun bara skilningsleysi sem stillir „average joe“ upp, annaðhvort í vörn eða sókn.

Saga Þvottahússins

Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðilinn DV sem bætist við Mannlíf sem hafa staðið á bakvið Þvottahúsið og nú Alkastið síðan að Smartland slaufaði Þvottahúsinu af pólitískum ástæðum sem má lesa um hér.

Fljúgandi furðuhlutir

Í lok þáttarins barst talið að sviptingum vestan hafs í málum UFO eða UAP (Unidentified Aerial Phenomena). Sviptingarnar sem um ræðir hófust í lok júlí á þessu ári þegar vitnaleiðslur frammi fyrir þingnefnd Bandaríkjaþings fóru fram. Þar komu fram þrír fyrrum háttsettir menn innan bandaríska hersins og svöruðu spurningum um fljúgandi furðuhluti sem þeir telja sig og halda fram að þeir hafa bæði séð og heyrt af. Vitnisburður þessara vitna staðfesta frásögn Bob Lazar sem þótti á sínum tíma stórmerkileg.

Robert Scott Lazar sem er einnig þekktur sem Bob Lazar. Bob Lazar var að eigin sögn ráðin sem vélaverkfræðingur á svæði S4 (section 4) á svæði 51 (area 51). Að eigin sögn starfaði hann þar í um hálft ár við tilraunir og skoðanir á búnaði sem virtist vera aflgjafi flygilda sem hann vill meina að hafi náðst sem og fundist við fornleifauppgröft. Allt í allt segir að hann að á þessum tíma hafi förin verið níu samtals.

Hann kom fyrst fram í viðtali árið 1989 við rannsóknar fréttamanninn George Knapp undir dulnefninu “Dennis” og sagði hann ástæðuna vera að hann óttaðist um líf sitt sem og að tæknin sem hann vildi meina að knúði þessi farartæki væri að virtist hundrað prósent skilvirk hvað varðar orkulosun og notkun, því engin orka færi í að knýja þau áfram og mengun eða útblástur væri núll og því að hans mati mikilvægt fyrir mannkynið í heild sinni að fá þessar upplýsingar fram í dagsljósið.

Bob vildi meina að ójarðneskt efni sem hann kallaði element 1.15 væri efnið sem gerði það að verkum að flygildin gætu ferðast eins og þau virtust gera. Hann vildi meina að þetta efni sem í dag er þekkt sem frumefnið Moscovium fæli í sér eiginleika sem brjóta í bága við allar þær hugmyndir um hvað nútíma vísindi telji að sé mögulegt. Hann segir að efnið sé skorið í ákveðið form skífa og sett saman eftir ákveðinni uppskrift og magnað upp í einskonar kastara í botni flygildana þannig sé hægt að mynda vakúm í rými. Inn í þetta vakúm fellur svo farið í þær áttir sem kösturunum er beint og hugtakið ferðalag eða “transport” fellur nánast um sjálft sig því takmarkanir eins felast í kenningum Einsteins um að engin eind geti ferðast hraðar en ljósið gilda hreinlega ekki lengur.

Allt þetta og meira til í viðtalinu sem finna má á Spotify og öllum helstu streymisveitum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa

Deilir Íslandsheimsókn í beinu streymi – Þúsundir fylgjenda horfa