Hin skoska Caitlin McLean var þá í heimsókn hjá kærasta sínum, Gísla Gunnarssyni, þegar öflugur skjálfti reið yfir.
Ekki löngu síðar var Caitlin og Gísla gert að yfirgefa heimili sitt eins og öðrum Grindvíkingum. Caitlin og Gísla var eðlilega brugðið þegar skjálftinn reið yfir og það sama má segja um heimilishundinn sem sést á myndbandinu.
Daily Mail, The Sun, Metro og Independent hafa til að mynda birt myndbandið.
Haft er eftir Gísla á vef Daily Mail að hrinan öfluga hafi byrjað síðdegis á föstudag og skjálftarnir riðið yfir hver á fætur öðrum án afláts. Myndbandið má sjá hér að neðan.