Olivier Giroud var ansi vitlaus í gær er liðs hans, AC Milan, mætti Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni.
Giroud komst á blað í þessum leik en hann skoraði fyrra mark Milan sem komst í 2-0 forystu.
Lecce kom þó til baka í seinni hálfleiknum og jafnaði metin í 2-2 sem urðu að lokum úrslit viðureignarinnar.
Giroud fékk tvö gul spjöld á stuttum tíma í uppbótartíma en hann öskraði á dómara leiksins og var hundfúll með dómgæsluna.
Atvikið má sjá hér.
Olivier Giroud red card. 🟥#LecceMilan
pic.twitter.com/hidDsrxbuf— $ 🇵🇸 (@samirsynthesis) November 11, 2023