fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Pressan

Öllum brögðum er beitt til að finna „sjálfboðaliða“ fyrir rússneska herinn – Krefjast jafnvel „lausnargjalds“

Pressan
Föstudaginn 10. nóvember 2023 07:00

Herkvaðningu var mótmælt víða í Rússlandi haustið 2022. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússa vantar menn til að senda á vígvöllinn í Úkraínu. Til að fylla upp í götin í rússnesku hersveitunum þar hafa yfirvöld gripið til margvíslegra ráða til að fá „sjálfboðaliða“ til að senda á vígvöllinn.

Landsbyggðarfólk, farandverkamenn frá Mið-Asíu og skuldugir borgarar eru eltir uppi af yfirvöldum svo hægt sé að senda þá til Úkraínu.

Dag einn hvarf sonur konu að nafni Gulnara í meðalstórri rússneskri borg á landsbyggðinni. En fljótlega var hringt í hana og henni sagt að ef hún vildi ekki að hann yrði sendur til Úkraínu yrði hún að greiða „lausnargjald“ upp á sem svarar til um 240.000 íslenskra króna.

Það var ekki mafína sem hafði rænt syninum og krafðist lausnargjalds. Það var lögreglan sem var að verki. Gulnara fékk nokkurra daga frest til að útvega peningana, að öðrum kosti yrði sonur hennar, sem er ekki með rússneskt vegabréf, sendur til Úkraínu en lögreglan hafði neytt hann til að skrifa undir samning um að gerast „sjálfboðaliði“ í Úkraínu.

„Þetta er ekkert annað en þrælasala. Ég náði naumlega að skrapa saman peningum,“ sagði Gulnara í samtali við Jótlandspóstinn. Milligöngumaður lét lögregluna fá peningana og skömmu síðar gat sonur hennar yfirgefið Rússland heill á húfi.

Þegar gripið var til herkvaðningar fyrir um ári síðar olli það töluverðum samfélagslegum óróa og því reyna yfirvöld nú frekar að verða sér úti um hermenn í þjóðfélagshópum sem hafa ekki sterka pólitíska stöðu. Fangar eru þar á meðal en þeim hefur verið lofað sakaruppgjöf ef þeir lifa sex mánuði á vígvellinum í Úkraínu. Samkvæmt tölum frá rússneska dómsmálaráðuneytinu þá voru um 420.000 fangar í fangelsum landsins áður en stríðið hófst, nú eru þeir um 266.000 að því að Washington Post segir.

En það virðist sem það sé orðið erfiðara að sannfæra fanga um að fara til Úkraínu og því er nú leitað á önnur mið en um leið er sneytt fram hjá stórborgum á borð við Moskvu og St. Pétursborg. Ástæðan er að yfirvöld vita vel að það getur valdið mikilli óánægju meðal áhrifamikillar millistéttarinnar sem býr í borgunum. Þess í stað er leitað að mönnum í fjarlægum og fátækum héruðum landsins og oft eru það minnihlutahópar sem verða fyrir barðinu á útsendurum yfirvalda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Musk segir að heimilisleysi sé ekkert annað en lygar og áróður

Musk segir að heimilisleysi sé ekkert annað en lygar og áróður
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leikkona lést þegar hún tók þátt í hreinsunarathöfn

Leikkona lést þegar hún tók þátt í hreinsunarathöfn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Tik-Tok-maðurinn dæmdur

Tik-Tok-maðurinn dæmdur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu

Fann bróður sinn eftir 25 ára aðskilnað – Nú hefur sagan tekið óvænta og ljóta stefnu