fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fréttir

Starfsfólk N1 styrkir neyðarsöfnun UNICEF á Gaza um 5 milljónir

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 9. nóvember 2023 11:14

Mynd/Unicef

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkufélagið N1 mun láta fimm milljónir króna renna til neyðarsöfnunar UNICEF á Íslandi vegna átakanna á Gaza, en starfsfólk félagsins velur árlega mikilvægt málefni fyrir jólin til að styrkja. Forstöðumaður markaðssviðs N1 vonar að styrkurinn verði öðrum fyrirtækjum á Íslandi hvatning til að slást í hópinn. Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi hrósar N1 fyrir að fara fram með góðu fordæmi enda sé ljóst að neyð um milljón barna á Gaza sé mikil.

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur unnið við afar erfiðar og hættulegar aðstæður við að tryggja börnum og íbúum Gaza nauðsynlega mannúðaraðstoð í yfirstandandi átökum. Bæði hefur verið unnið að því að dreifa þeim hjálpargögnum sem voru til staðar sem og að útvega og dreifa hjálpargögnum og nauðsynjum síðan átök hófust. Tugir vörubíla á vegum UNICEF hafa flutt vatn, neyðarbirgðir, sjúkragögn, lyf, skýli fyrir fólk á flótta og aðrar nauðsynjar yfir Rafah-landamærin frá 21. október. UNICEF hefur margítrekað kröfu sína um tafarlaust vopnahlé og að vernd allra barna sé tryggð sem og óhindraður og öruggur aðgangur mannúðarstofnana að íbúum Gaza, en um helmingur þeirra eru börn.

„Hörmungarnar á Gaza hafa ekki látið starfsfólk N1 ósnortið. Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með neyð allra þessara barna sem hafa ekkert sér til saka unnið og því vildum við leggja okkar af mörkum. Við vitum að UNICEF mun miðla styrknum þangað sem hann nýtist best og við hvetjum fleiri fyrirtæki til að styðja við þau góðgerðarsamtök sem stunda óeigingjarnt starf í eldlínunni á átakasvæðum,“ segir Silja Mist Sigurkarlsdóttir, forstöðumaður markaðssviðs N1 í fréttatilkynningu.

„Það er svo margt sem fyrirtæki geta gert til að láta gott af sér leiða og þarna stígur N1 fram með veglegan styrk þangað sem neyðin er mest. Við erum þakklát og stolt að taka við styrknum og vitum að hann mun nýtast til lífsbjargandi verkefna á Gaza. Vonandi verður framtakið einnig til þess að fleiri fyrirtæki líti sér nær og gefi slíka styrki til góðra málefna – þörfin er svo sannarlega til staðar á þessum síðustu vikum fram að jólum,“ segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Hafi önnur fyrirtæki eða einstaklingar áhuga á að fylgja fordæmi N1 og styðja við gott málefni bendir UNICEF á Íslandi á neyðarsöfnun sína vegna átakanna á Gaza:

Söfnunarreikningur fyrir börn á Gaza: 701-26-102015 Kennitala 481203-2950

Einnig bendum við á Almenna neyðarsjóðinn þar sem hægt er að styrkja starfsemi UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, vegna neyðar barna víða um heim.

Söfnunarreikningur fyrir Almenna neyðarsjóðinn: 0701-26-102020 Kennitala: 481203-2950

Til að fá nánari upplýsingar um frekari styrktarleiðir og einstakar neyðarsafnanir bendum við á heimasíðuna okkar, unicef.is eða að hafa samband í unicef@unicef.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?

Æsispennandi kapphlaup um að verða „Trump-hvíslari“ – Hver er með forystuna?
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu

Zelenskyy segir að 43.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu
Fréttir
Í gær

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks

Rannsókn mun fara fram á andláti Lúðvíks
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu

Lögreglan á Vestfjörðum lýsir eftir Áslaugu
Fréttir
Í gær

Íslensk vötn ekki eins hrein og við hreykjum okkur af – Hættuleg eilífðarefni yfir mörkum í öllum sýnum

Íslensk vötn ekki eins hrein og við hreykjum okkur af – Hættuleg eilífðarefni yfir mörkum í öllum sýnum
Fréttir
Í gær

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“

Henrietta segir foreldrajafnrétti stærsta jafnréttismálið – „Þetta misrétti hef ég upplifað á eigin skinni“