Á fundi stjórnar KSÍ þann 31. október var ákveðið að sambandið myndi óska eftir því við UEFA að mögulegur heimaleikur karlalandsliðsins snemma á næsta ári yrði leikinn á erlendri grundu. Það sama gæti orðið uppi á teningnum með umspilsleik kvennalandsliðsins í febrúar.
Karlalandsliðið er að öllum líkindum á leið í umspil um sæti á EM næsta sumar í gegnum Þjóðadeildina og verður það spilað í mars. Undanúrslitaleikur verður leikin ytra en verður dregið um hvor á heimaleik í úrslitaleik um sæti á EM.
Fari svo að Ísland fái heimaleik mun KSÍ óska eftir því að sá leikur fari fram á hlutlausum velli utan Íslands.
„Stjórn KSÍ harmar ákaflega þá stöðu sem íslensk knattspyrna er í vegna aðstöðuleysis, þrátt fyrir alla þá vinnu sem hefur verið unnin undanfarin ár. Það er þungbær ákvörðun fyrir stjórn KSÍ að samþykkja að óska formlega eftir því við UEFA að mögulegur heimaleikur A landsliðs karla í mars 2024 verði leikinn á hlutlausum velli utan Íslands enda eru aðstæður ekki fyrir hendi til að leika þann leik hérlendis,“ segir í fundargerð frá stjórnarfundi KSÍ.
Þá gæti kvennalandsliðið átt heimaleik í umspili Þjóðadeildarinnar í febrúar. „Þá samþykkti stjórn KSÍ enn fremur að sækja um undanþágu frá UEFA fyrir mögulegan heimaleik A landsliðs kvenna í febrúar 2024,“ segir enn fremur í fundargerðinni.