fbpx
Sunnudagur 15.desember 2024
Fréttir

„Börnin okkar hafa upplifað að hvorki jarðskjálftar né eldgos hér á svæðinu síðustu ár hafi skaðað neinn“

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 6. nóvember 2023 08:54

Otti er formaður Landsbjargar og íbúi í Grindavík. Við hlið hans er myndin sem dóttir hans teiknaði um helgina.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Segja má að Otti Sigmarsson sé í miðju þeirrar atburðarásar sem nú á sér stað á Reykjanesi. Otti er íbúi í Grindavík, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar og sjálfboðaliði í björgunarsveit sem tekist hefur á við þrjú eldgos á stuttum tíma.

Otti skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í gærkvöldi sem vakið hefur mikla athygli. Hafa íbúar í Grindavík meðal annars þakkað honum fyrir skrifin og þá hefur að minnsta kosti einn þingmaður gert hana að umtalsefni.

Í færslunni segir Otti að í ljósi aðstæðna og þeirra atburða sem nú eru í gangi við Grindavík langi hann að koma með persónulegt innlegg sem vonandi einhverjum þykir gagnlegt. Hvetur hann fólk – og einkum fjölmiðla – til að sýna meiri yfirvegun í framsetningu frétta um stöðuna sem uppi er.

Stundum mætti aðeins staldra við

Otti segir að ástandið sé vissulega erfitt um þessar mundir, fólk sé að vakna um miðjar nætur við jarðskjálfta og það glymji sífellt í glösum og diskum uppi í skáp við skjálftana sem mælst hafa að undanförnu, nánast undir bænum.

„Svo þegar fólk fer á fætur og kíkir á frétta- eða samfélagsmiðla blasir við hver hamfarafyrirsögnin á fætur annarri og eftir þann lestur er eiginlega bara spurning um hver verður síðastur að forða sér úr bænum. Jarðfræðingar keppast við að túlka mælingar af Reykjanesinu eins og þeim sýnist og fjölmiðlarnir keppast svo við birta þessar túlkanir í öllum mögulegum sviðsmyndum. Það er sannarlega hlutverk fjölmiðla að skoða allar hliðar málanna og velta við öllum steinum en stundum mætti aðeins staldra við og skoða hvaða áhrif þessi fréttaflutningur hefur á fólkið sem hér býr,“ segir Otti.

Hann freistar þess svo að svara því hver raunveruleg staða er núna.

„Það sem við vitum er að það er kvika að safnast undir okkur og það er hellingur af jarðskjálftum því tengdu. Hvað gerist í framhaldinu veit enginn og það er í raun ómögulegt að segja til um. Þess vegna keppast jarðfræðingar og sófasérfræðingar við að varpa upp sem verstum sviðsmyndum því enginn getur raunverulega sagt til um hvað muni gerast.“

Mjög vel fylgst með öllu

Otti segir að íbúar í Grindavík séu margir hverjir áhyggjufullir vegna stöðunnar.

„Ég er nokkuð viss um að fólk almennt geri sér ekki grein fyrir andlegri líðan Grindvíkinga þessa dagana. Ég gæti ímyndað mér að hér séu hundruð einstaklinga sem lifa í sífelldum ótta við það að missa heimili sitt eða þurfa að flýja það sökum skorts á vatni eða hita. Þetta er ekkert grín, þetta eru raunverulegar áhyggjur fólks í bland við óreglulegan svefn og stöðuga jarðskjálfta. Þessi kokteill getur bara ekki verið góður.“

Otti segist ekki vilja draga úr alvarleika þessara aðstæðna sem íbúar búa við en langar engu að síður að skilgreina leikreglurnar aðeins betur.

„Almannavarnir og Veðurstofa Íslands eru alltaf með bestu og áreiðanlegustu upplýsingarnar hverju sinni. Þar er ekkert kjaftæði í gangi og upplýsingar frá þeim alltaf skýrar og greinagóðar. Það er fullt af fólki sem vakir á nóttunni til þess eins að fylgjast með mælum og láta vita ef eitthvað óvenjulegt fer að gerast. Þetta fólk vinnur á sólarhringsvöktum hjá Veðurstofu Íslands og eru sérfræðingar í málaflokknum.“

Hann segir að um leið og einhver raunveruleg hætta skapast verði brugðist tafarlaust við með viðeigandi hætti og það muni ekki fara framhjá neinum hvort sem hann er vakandi eða sofandi.

„Við erum með rýmingaráætlanir ef allt skyldi fara á versta veg. Þannig erum við undirbúin og allir meðvitaðir um hvernig eigi að bregðast við. Það er staðreynd að það væri búið að loka einhverjum vegum eða rýma eitthvað ef yfirvöld teldu ástæðu til. Líf og heilsa fólks er alltaf í fyrsta sæti og fólk getur treyst því.“

Hvetur til jákvæðni

Otti segir að ef til þess kemur muni fólk takast á við þetta verkefni saman, fylgja fyrirmælum og tryggja öryggi hvers annars. „Þangað til er lítið annað hægt að gera en halda áfram veginn,“ segir hann.

Hann birtir svo að lokum mynd sem 10 ára dóttir hans teiknaði um helgina þegar hún var í Vatnaskógi. Fékk hún frjálsan tíma til að teikna fallega mynd.

„Hún er ekki hrædd við eldgos eða hefur einhverjar sérstakar áhyggjur af þessu öllu. Börnin okkar hafa upplifað að hvorki jarðskjálftar né eldgos hér á svæðinu síðustu ár hafi skaðað neinn. Það ásamt samtali og fræðslu hefur skilað því að þau upplifa að það sé í raun lítið að óttast. Myndin er því eflaust teiknuð með eitthvað jákvætt í huga, ég er allavega brosandi á myndinni en það segir ýmislegt um ástandið ef eldgos er efst í huga 10 ára barns. Verum jákvæð.“

Nauðsynleg skrif fyrir íbúa

Sem fyrr segir hefur færslan vakið mikla athygli og hafa fjölmargir lagt orð í belg undir henni. „Takk fyrir Otti, þetta róar mann aðeins,“ segir meðal annars í einni athugasemd. „Takk fyrir þennan pistil. Hann er nauðsynlegur fyrir okkur sem búum í Grindavík,“ segir í annarri.

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, gerir pistilinn að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Hvetur hann þá sem fjalla um jarðhræringarnar á Reykjanesinu að hlusta á Otta enda hafi hann eina mestu yfirsýnina á ástandið og mikla reynslu.

„Fyrirsagnir fjölmiðlanna og framsetning frétta frá mismunandi sérfræðingum geta verið mjög skaðleg. Andleg heilsa íbúanna er eitt stærsta verkefni almannavarna á þessum stað í atburðinum. Fjölmiðlar og aðrir eiga að aðstoða við þær aðstæður en ekki gera verkefnið stærra. Takk kæri Otti,“ segir Vilhjálmur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Harmleikurinn í Kiðjabergi – Gediminas varð Victoras að bana

Harmleikurinn í Kiðjabergi – Gediminas varð Victoras að bana
Fréttir
Í gær

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót

Sveitarstjórn í Gran Canaria ríður á vaðið og setur á ferðamannaskatt – Tekur gildi eftir áramót
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar

Katrín upplifði sorg eftir Alþingiskosningarnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“

Útför Sólons fór fram í dag – „Mikið er ég reið og sorgmædd yfir aðgerðarleysi Icelandair í kjölfar andláts þíns“