Um hálfþrjúleytið á föstudagsnótt gerðist það neðarlega á Laugavegi, nálægt Vegamótastíg, að maður á vespu keyrði á fótgangandi konu. Konan skall niður í götuna og þar sem hún lá í götunni tók hún ljósmynd af ökumanni vespunnar, sem eins og myndin ber með sér, var með andlitið hulið.
Konan var flutt á bráðamóttöku til aðhlynningar og athugunar en reyndist ekki illa slösuð. „Þetta var bara smá hnjast og heilahristingur,“ segir hún í stuttu spjalli við DV .
Aðspurð um hvort þetta hafi verið árás eða aðgæsluleysi hjá ökumanni vespunnar, segir konan: „Bara algjört kæruleysi.“
Kærasti konunnar hefur auglýst eftir vitnum að atvikinu á Facebook. Engu að síður óska bæði nafnleyndar í þessari frétt. Að sögn konunnar hafa nokkur vitni gefið sig fram við hana.
Hún segir lögreglu vita um atvikið en kannski sé erfitt um vik þar sem ekki er vitað hver ökumaðurinn er. „En það eru náttúrulega myndavélar þarna út um allt,“ segir hún.
Aðspurð segist konan áforma að kæra málið formlega til lögreglu á morgun.
Þeir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, frá og með mánudegi, í síma: 444 1000.