Ísraelsher gerði loftárás á flóttamannabúðir í Gaza í gær með þeim afleiðingum að áttatíu manns létu lífið og hundruðir særðust samkvæmt umfjöllun CNN. Meirihluti þeirra sem létust voru konur og börn. Ísraelski herinn hefur gefið frá sér yfirlýsingu þess efnis að skotmark árásarinnar hafi verið Hamas-liðar sem leyndust í búðunum og rekið þaðan stjórnstöð. Árásin hafi byggst á nákvæmum upplýsingum og að Hamas-liðunum hafi verið útrýmt.
Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem Ísraelsmenn gera árás á flóttamannabúðir á Gaza en mikill fjöldi lét lífið þegar gerð var loftárás á Jabalia-flóttamnannabúðirnar, þær stærstu á Gaza, .á þriðjudag. Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu þá árás og sagði Antonio Guterres, aðalritari SÞ, að honum „blöskraði stigmagnandi ofbeldið á Gaza.“
Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna telur að árásin á Jabalia-búðirnar geti verið skilgreint sem stríðsglæpur í ljósi þess hversu hátt hlutfall óbreyttra íbúa lést og umfangi eyðileggingarinnar.
Talið er að 8.700 Palestínumenn hafi látið lífið á meðan umfangsmiklar árásir Ísraelshers hafa staðið yfir. Þá sendi UNICEF frá sér yfirlýsingu en í henni kemur fram að um 400 börn láti lífið á degi hverjum í árásunum. Í heildina eru 3.500 börn sögð vera meðal þeirra látnu og þúsundir hafa slasta.
„Þetta getur ekki talist eðlilegt,“ segir í yfirlýsingunni þar sem undirstrikað er að börn hafi þjáðst of mikið í átökunum. „Börn eru ekki skotmörk,“ segir í yfirlýsingunni.