Gylfi Þór Sigurðsson er búinn að skora tvö mörk fyrir Lyngby í leik gegn FC Helsingør í danska bikarnum. Lyngby er með forystu í leiknum. Markið má sjá neðst í fréttinni.
Gylfi skoraði sitt fyrsta mark fyrir danska félagið úr vítaspyrnu en það síðara kom af löngu færi.
Danskir stuðningsmenn Lyngby eru afar sáttir með mörk Gylfa og þá sérsaklega það síðara.
Gylfi skoraði á dögunum tvö mörk fyrir íslenska landsliðið í sigri á Liechtenstein og nú hefur hann skorað fyrstu mörkin í Danmörku.
Gylfi Sigurdsson's 2nd goal vs Helsingør
The most both footed player of all-time & it's not even close. pic.twitter.com/JhHPdAIPO8
— SuperStatto™🇮🇸 (@StattoSuper) October 31, 2023