Hvort sem við segjum pulsur eða pylsur þá er þetta uppskrift sem kemur skemmtilega á óvart!
Hráefni
- 1 msk Smjör
- 1/2 laukur, saxaður
- 4 stk Pylsur/pulsur, skornar í bita
- 1 hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk Sesamolía
- 500 g Soðin hrísgrjón
- 2 egg, léttþeytt
- 2 msk Soyasósa
- 1 Vorlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
Leiðbeiningar
- Bræðið smjör á pönnu við meðalhita.
- Bætið lauk og pulum út á pönnuna og steikið í 4-5 mínútur. Bætið þá hvítlauk saman við og steikið í 1-2 mínútur.
- Bætið sesamolíu út á pönnuna og steikið í 1 mínútu. Setjið þá hrísgrjónin saman við.
- Hrærið öllu saman í nokkrar mínútur.
- Ýtið blöndunni til hliðar á pönnunni og bætið eggjum út á hana og hrærið þau. Þegar þau eru farin að steikjast blandið þá saman við hrísgrjónablönduna.
- Setjið soyasósu saman við og hrærið vel og stráið vorvorlauk yfir allt.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.